Vorbraut 14
Vorbraut 14
Nýjar 2ja-4ra herbergja íbúðir á frábærum útsýnisstað í Hnoðraholti í nýju spennandi hverfi í Garðabæ. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu, helstu stofnæðar og fjölbreytt útivistarsvæði.
Um er að ræða 14 íbúða lyftuhús með bílakjallara, þar sem mörgum íbúðum fylgir stæði. Íbúðirnar eru frá um 70 til 175 fm að stærð. Íbúðir afhendast fullbúnar með gólfefnum. Vélrænt loftræsikerfi er í öllum íbúðum sem nýtir varma inniloftsins við loftskipti. Á sameiginlegri lóð eru sex bílastæði, auk þess eru götustæði meðfram lóðinni norðan og austan megin fyrir almenna notkun. Leiksvæði og djúpgámar fyrir húsið eru innan lóðar.
Húsið stendur hátt á góðum útsýnisstað og njóta margar íbúðir glæsilegs útsýnis.
Áætluð afhending er október/nóvember 2026.
Eigandi framkvæmdar og byggingaraðili: Meistarasmíð ehf.