Viltu einfalda lífið og minnka við þig?
Viltu einfalda lífið og minnka við þig?
Fasteignaviðskipti á mannamáli fyrir 60 ára og eldri
Opinn kynningarfundur miðvikudaginn 15. maí frá kl. 16:15–18:00
👉 Skráðu þig á viðburðinn https://bit.ly/aðminnkaviðsig
🏡 Minna húsnæði – meiri vellíðan - einfaldara líf
Ertu að spá í að minnka við þig og fara í minna og þægilegra húsnæði án viðhalds- og garðvinnu? Við bjóðum öllum 60 ára og eldri+ til fundar við okkur þar sem við munum fara yfir helstu atriði sem mikilvægt er að hafa í huga þegar fólk hyggst minnka við sig.
🔍 Hvaða kostir eru í boði?
Við förum yfir þá kosti sem eru í boði og hvernig best er að standa að því að fara í minna húsnæði. Þarfir fólks, áherslur og fjárhagslegt svigrúm er mismunandi og við getum boðið fjölbreytt úrval húsnæðis sem hentar ólíkum þörfum og óskum.
☕Heitt á könnunni
Við tökum vel á móti þér í Lágmúlanum og það verður heitt á könnunni. Verið velkomin til okkar í fasteignaspjall á mannamáli.
Dagskrá:
16:15 Að minnka við sig – fimm mikilvæg atriði til að hafa í huga
Jason Guðmundsson, eigandi Mikluborgar
16:30 Fjármál og fasteignaviðskipti fyrir 60 ára og eldri
Björn Berg, fjármálaráðgjafi
17:00 Áhugaverðar eignir fyrir 60 ára og eldri+
Jón Rafn Valdimarsson, löggiltur fasteignasali hjá Mikluborg
Fundarstjóri verður Ragnheiður Pétursdóttir, lögfræðingur og teymisstjóri í skjaladeild Mikluborgar.
Eftir framsögur verður söluteymi Mikluborgar til viðtals um eignir og möguleika á markaði.