Vorbraut 9-11
Vorbraut 9-11
Íbúðirnar eru fjölbreyttar að stærð og herbergjafjölda, í þriggja hæða húsum með lyftu og bílakjallara. Íbúðirnar eru með svölum, gólfhita, loftskiptakerfi, vönduðum innréttingum, steinplötum í eldhúsi og flísalögðum votrýmum. Húsin eru með lyftu, sérgeymslum, hjóla- og vagnageymslu og aðgengi að bílastæðum á lóð og í bílakjallara.
Íbúðirnar eru með gólfsíðum gluggum sem hleypa birtu vel inn.
Stutt er í stofnæðar og náttúruna við Heiðmörk og Golfklúbb GKG sem og alla helstu þjónustu. Fallegar göngu- og hjólaleiðir.
Hönnun
Vorbraut 9 og 11 eru smágerð fjölbýlishús sem falla að meginhugmynd deiliskipulags Hnoðraholts um lágreista, uppbrotna og líflega byggð í grænu og hallandi landslagi.
Þrjár hæðir og næg bílastæði
Húsin eru þrjár hæðir auk bílakjallara og hýsa hvert um sig 8–14 íbúðir. Mælikvarði byggðarinnar er hófstilltur og tekur mið af nálægri íbúðarbyggð, landslagi og þeim gæðum sem felast í víðsýni frá holtinu.
Við hönnun húsanna var lögð áhersla á að nýta halla lóðanna á jákvæðan hátt, bæði með skýrum aðkomum frá Vorbraut og garðmegin, og með því að tryggja íbúðum góða birtu, yfirsýn og óskert útsýni til norðurs og vesturs, meðal annars að Esju, Bláfjöllum og Snæfellsjökli.
Vandaðar klæðningar og uppbrot í útliti
Byggingarnar mynda hver sinn karakter í götumyndinni en halda jafnframt sameiginlegu yfirbragði sem styður við heildstæða götumynd Vorbrautar.
Útlit húsanna byggir á vandaðri efnisnotkun og uppbroti í klæðningum, þar sem álklæðning er í forgrunni ásamt tveimur til þremur ólíkum efnisáferðum sem gefa hverju húsi sérstöðu.
Íbúðargæði
Íbúðargæði eru höfð að leiðarljósi með gólfsíðum gluggum í alrýmum, góðum tengslum við útsýni og dagsbirtu, gólfhita og loftskiptikerfi sem tryggir aukin loftskipti og gott inniloft ásamt því að húsin eru með lyftu.
Stoðrými, geymslur og tæknirými eru leyst í bílakjöllurum þannig að jarðhæðir og lóðir nýtist sem best fyrir íbúðir, aðkomu og útirými.
Heildarniðurstaðan er yfirveguð og nútímaleg byggð sem vinnur með landslagi Hnoðraholts, styrkir götumynd Vorbrautar og nýtir þau einstöku búsetugæði sem felast í birtu, útsýni og skjólmyndun á svæðinu.