Opið hús: 01.07.2026, 17:00 - 01.07.2026, 18:00

Vorbraut 11 210

Garðabær

Lýsing

Miklaborg fasteignasala kynnir:


Glæsilegar nýjar 2ja–4ra herbergja íbúðir á eftirsóttum útsýnisstað á Hnoðraholtinu í nýju og spennandi hverfi í Garðabæ. Staðsetningin er afar góð þar sem stutt er í helstu stofnæðar, fjölbreytta þjónustu og útivistarsvæði.

Um er að ræða fallegt 8 íbúða lyftuhús á fjórum hæðum með bílakjallara. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna, nema í votrýmum þar sem gólfefni fylgja. Í öllum íbúðum er gólfhiti og gólfsíðir gluggar.
Bílastæði eru á sameiginlegri lóð og fylgja flestum íbúðum sérmerkt stæði í bílakjallara.

Húsið stendur á góðum útsýnisstað og njóta margar íbúðir glæsilegs útsýnis.

Allar íbúðir eru útbúnar sjálfstæðu loftræstikerfi sem tryggir stöðug loftskipti innan íbúðar.


***Sjá nánar hér á heimasíðu verkefnisins***


Íbúð 101 er 4ja herbergja með stæði í bílageymslu og útsýni til norð-austurs.


Allar nánari upplýsngar veita:

Bára Gunnlaugsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 899-8809 eða bara@miklaborg.is

Sæþór Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 855-5550 eða saethor@miklaborg.is

Ingimundur Ingimundarson, löggiltur fasteignasali í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is



Birt stærð íbúðarinnar eru 123.6 fm, þar af 5.7 fm geymsla.


Eignin skiptist í hjónaherbergi með fataherbergi og útgengi út á sérafnotareit, tvö herbergi með skápum, baðherbergi með sturtu, eldhús sem er opið inn í bjarta stofu og sér þvottahús. Stæði í lokaðri bílageymslu.


Hvort sem þú ert að kaupa þína fyrstu eign, ert að stækka eða minnka við þig, eða ert að leita að nútímalegu og vönduðu heimili, þá er hér um að ræða kost sem vert er að skoða.


Verktaki er GG verk, sem stofnað var árið 2006 og er rekið við góðan orðstýr. Fyrirtækið hefur byggt yfir 1500 íbúðir og atvinnurými og leggur ríka áherslu á vönduð vinnubrögð og framúrskarandi fagmennsku. GG verk er ISO vottað fyrirtæki

Afhending er áætluð í september 2026.


Fasteignin Vorbraut 11

123.6 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2025
Fermetraverð : 929.612 Kr/m²
Byggingargerð : Fjölbýlishús
Fasteignamat :
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

bara
Bára Gunnlaugsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Bára lauk námi til löggildingar fasteigna- og skipasala vorið 2023.  Hún er einnig menntuð innanhússarkitekt og útskrifaðist í mílanó 2007. Bára hefur brennandi áhuga á öllu sem tengist heimilum og hönnun, allt frá skipulagi og stíl til notagildis og andrúmslofts. Hún er búsett í kópavogi, gift og á 3 börn. 

114.900.000 Kr.
Hafðu samband