Vogatunga 39
270 MosfellsbærVogatunga 39 270
MosfellsbærLýsing
Miklaborg kynnir: Fallegt 236,7 fm tveggjahæða raðhús við Vogatungu í Mosfellsbæ. Húsið skiptist í forstofu, bílskúr, tvö baðherbergi, 4 svefnherbergi stofu og eldhús. Tveggja herbergja auka íbúð er búið að koma fyrir á jarðhæð sem skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Góð eign fyrir stóra eða stækkandi fjölskyldu.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann Axelsson í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is
Vogatunga 39 er tvílift raðhús byggt úr forsteyptum einingum með tvíhalla þaki.
Nánari lýsing
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp, úr forstofu er gengið inn í auka íbúðina, bílskúrinn og aðal íbúð. Unglingaherbergi er á jarðhæð með parketi á gólfi og einnig baðherbergi með þvottaaðstöðu þar sem eru flísar á gólfi og veggjum. Gangur á neðri hæð er með flísum á gólfi og er nýttur sem skrifstofa með útgegni út í baklóð. Steyptur stigi með teppi á þrepum og góðum glugga til norður sem gefur góða byrtu og skemmtilegt útsýni að Esjunni. Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu rými með útgengi út á góðar svalir til suðurs. Eldhús er með fallegri innréttingu þar sem blandað er saman dökkum við og hvítum hurðum, borðplata er gráleitur steinn. Í eldhúsi eru tveir ofnar, innbyggð uppþvottavél, helluborð og pláss fyrir breiðan ísskáp. Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum. Barnaherbergi með fataskáp. Barnaherbergi 2 er með fataskáp, en þetta herbergi var sett upp á kostnað stofunnar og því hægt að stækka stofuna á kostnað þess. Baðherbergi á hæðinni er með flísum á gólfi og tveimur veggjum, walk in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu með vask og speglaskáp. Á efrihæð er parket á gólfum nema á baðherbergi þar sem eru flísar. Aukin lofthæð er á efrihæð. Í aukaíbúð er svefnherbergi með fataksáp. Stofa og eldhús í opnu rými með glugga til suðurs. Eldhús með hvítri innréttingu með innbyggðri lítill uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og plássi fyrir ísskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, horn sturtu með glerskilrúmi, handklæðaofni, plássi fyrir þvottavél og þurrkara og innréttingu með vask, skúffum og speglaskáp.
Bílskúr er með kalt og heitt vatn og rafdrifinum hurðaopnara.
Nánari upplýsingar veitir
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is