Opið hús: 19.04.2026, 14:00 - 19.04.2026, 14:30

Vesturvin 3 - 702 101

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Penthouse íbúð með óviðjafnanlegu sjávarútsýni. Tækifæri til að tryggja sér þakíbúð í einu glæsilegasta fjölbýlishúsi höfuðborgarsvæðisins. Metnaðarfull hönnun á frábærum útsýnisstað í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið er staðsett örstutt frá verslun og þjónustu og í 10-15 mín. göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur. Íbúðirnar í Vesturvin 3 eru til afhendingar okt/nóv 2025.

Íbúðin er afhent tilbúinn til innréttinga. Mögulegt er að fá ibúðina afhenta lengra komna.


Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is

Íbúð 702 er glæsileg þakíbúð á 7. hæð sem er efsta hæð hússins en þar er frábært útsýni í allar áttir. Íbúðarrýmið skiptist meðal annars í stórar og bjartar stofur með opnu eldhúsi sem er með eldunareyju . Alls eru tvö svefnherbergi í íbúðinni og þar af hjónaherbergi með fataskáp og sér baðherbergi. Þvottaherbergi eru á hæðinni og gestasnyrting með sturtu. Tvennar svalir með óviðjafnanlegu útsýni en svalir eru annars vegar 5,7 m2 og hins vegar 41 m2. Tengi fyrir heitum potti er á vestur svölum.

Allar íbúðir eru með gólfhita. íbúðin er skráð 154,2 m2 með geymslu sem er 13,4 m2. Íbúðinni fylgja tvö bílastæði í lokaðri bílgeymslu merkt nr. B-7 og B-8 og einnig sérgeymsla í sameign merkt 3-0045.


Nánar um verkefnið hér á heimasíðu þess HÉR.


Nánari upplýsingar veitir : Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is



Fasteignin Vesturvin 3 - 702

154.2 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2024
Fermetraverð : 1.523.995 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 12.050.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

þrö
Þröstur Þórhallsson
Eigandi og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Þröstur hefur starfað við sölu fasteigna frá árinu 1996.Hann fékk löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali vorið 2000. Þröstur býr í Fossvoginum og er Víkingur en hann spilaði bæði fótbolta og handbolta með Víking á yngri árum, er giftur og á þrjú börn. Áhugamál eru íþróttir og útivera. Golf og skák eru í miklu uppáhaldi og þess má geta að Þröstur er stórmeistari í skák, fyrrverandi Íslandsmeistari og þrautreyndur landsliðsmaður.

235.000.000 Kr.
Hafðu samband