Vesturvin 1-3

Forsala er hafin á íbúðum í húsunum Vesturvin V1 og V2, samtals 94 íbúðir. Húsin tvö standa við Ánanaust og hafa einstakt útsýni til sjávar og fjalla. Húsin eru sjö hæðir og flestar íbúðir með stæði í bílageymslu.

Verkefnið felst í uppbyggingu sex húsa á svæðinu sem kallast munu hvert á við annað en hafa um leið sín einstöku einkenni. Húsin verða á fjórum til sjö hæðum. Hæst við Ánanaust en lægri Vesturgötumegin. Alls verða 210 íbúðir byggðar í þessum sex húsum auk bílakjallara sem rúmar 167 stæði. Framkvæmdir eru hafnar og stefnt er á að afhenda fyrstu íbúðir sumarið 2024.

Ítölsku innanhússhönnuðirnir hjá Studio Marco Piva hafa hannað þrjú þemu fyrir innri frágang íbúðanna sem sækja innblástur í íslenska landslagið. Hönnuninni er ætlað að skapa einstakan lífstíl sem sameinar íslenskan arkitektúr og ítalska innanhúshönnun og glæsilegan og vandaðan hátt.

Sjá allar eignir í Vesturvin 1-3
vesturvininterion

Mikil áhersla er lögð á vandaðar innréttingar og eldhús- og baðtæki eru valin með tilliti til gæða og endingar. Innréttingar eru sérsmíðaðar og koma frá ítalska fyrirtækinu Cassina, en þeir eru þekktir fyrir gæðaframleiðslu og innréttingalausnir sem fela í sér framúrskarandi nútímahönnun fyrir öll rými heimilisins.

Um Innanhússhönnun
þrö
Þröstur Þórhallsson
Eigandi og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Þröstur hefur starfað við sölu fasteigna frá árinu 1996.Hann fékk löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali vorið 2000. Þröstur býr í Fossvoginum og er Víkingur en hann spilaði bæði fótbolta og handbolta með Víking á yngri árum, er giftur og á þrjú börn. Áhugamál eru íþróttir og útivera. Golf og skák eru í miklu uppáhaldi og þess má geta að Þröstur er stórmeistari í skák, fyrrverandi Íslandsmeistari og þrautreyndur landsliðsmaður.

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520