Vesturgata 66 (401) 101
ReykjavíkLýsing
Móeiður Svala lögg. fasteignasali og Miklaborg kynna:
Einstakt tækifæri til að eignast glæsilega íbúð í einu metnaðarfyllsta fjölbýlishúsi vesturbæjar Reykjavíkur. Húsið stendur á afar eftirsóttum útsýnisstað, þar sem stutt er í allar helstu verslanir og þjónustu. Margir veitingarstaðir í kring og miðbær Reykjavíkur er í aðeins 10–15 mínútna göngufæri.
Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Fyrir allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is og Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Nánari lýsing: Íbúð 401 er vönduð og einstaklega falleg 2–3ja herbergja íbúð á 4. hæð, þar sem lögð hefur verið rík áhersla á gæði, birtu og vel nýtt rými.
Forstofa með miklu skápaplássi. Stofa og borðstofa mynda hlýlegt og opið alrými með eldhúsinu. Stór eldunareyja með mikið skápapláss og frábærar suð-vestur svalir með útsýni yfir til Snæfellsjökuls þegar skyggni er gott.
Afstúkað fjölskyldurými, 10,6 fm að stærð, frábært rými sem hentar jafnt sem setustofa, vinnuaðstaða eða barnaherbergi og er auðvelt að útbúa þar auka svefnherbergi.
Hjónasvíta: Fataskápar með innfelldri lýsingu, stórir gluggar með æðislegu útsýni, sér baðherbergi með sturtu inn af. Auk þess er annað baðherbergi með sturtu og sér þvottahús með innréttingu.
Íbúðin er skráð 98,6 fm, auk 9,7 fm sérgeymslu. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílgeymslu, merkt B-111.
Vandaðar ítalskar innréttingar (Eimur), hágæða tæki frá Miele og Siemens, steinborðplötur, gólfsíðir gluggar og gólfhiti í allri íbúðinni.
Búið er að líma niður glæsilegt olíuborið eikar parket (Loreco Moss brushed) frá EBSON.
Fyrir allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is eða Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is