Vesturberg 153 111

Reykjavík

Lýsing

Möguleiki á skiptum á minni eign.Miklaborg kynnir: Endaraðhús með aukaíbúð á frábærum útsýnisstað við Vesturberg í Reykjavík. Eignin er á mjög góðu verði og er til afhendingar fljótlega. Fimm bílastæði eru á lóðinni fyrir framan húsið. Á neðri hæð er andyri, gestasnyrting, eldhús og stofur ásamt þvottahúsi. Þar er einnig nýleg stúdíóíbúð með sérinngangi sem hentar vel til útleigu eða fyrir unglinginn. Á efri hæð fjögur svefnherbergi, sólstofa og baðherbergi.

Nánari upplýsingar: Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur, lögg. fast. vidar@miklaborg.is. 6941401.

Nánari lýsing: Neðri hæð: Komið inn í anddyri með fatahengi. Gestasnyrting með upphengdu salerni.

Eldhús með fallegri nnréttingu frá 2023, með spanhelluborði tveimur bakaraofnum. Flísar milli skápa eru frá Þ.Þorgrímsson. Borðkrókur er í eldhúsi, uppþvottavél og gólfefni er nýlegt harðparket

Stofa er með nýlegu harðparketi og gengt frá henni út á mjög stóra verönd.

Flísalagt þvottahús er á hæðinni og gengt er frá því á veröndina.

Efri hæð: Þar eru fjögur svefnherbergi.

Baðherbergi með baðkari og sturtu, flísalagt í hólf og gólf. Þar er gluggi. Á hæðinni er einnig góður vinnukrókur ogmjög rúmgóð sólstofa með harðparketi. Gengt frá henni á svalir með frábæru útsýni yfir borgina.

Á neðri hæð er nýleg stúdíóíbúð með sérinngangi. Baðherbergi er með sturtuklefa og upphengdu salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Nýleg eldhúsinnrétting með spanhelluborði og eldavél. Ísskápur getur fylgt. Gengt frá henni á verönd. Teikningar sjá: https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5004-S%C3%A9ruppdr%C3%A6ttir/?q=%22Vesturberg%20153%22

Þetta er mikið endurnýjað endaraðhús á frábærum útsýnisstað í Reykjavík með stæði fyrir fimm bíla innan lóðar. Góð eign á sanngjörnu verði.

Nánari upplýsingar: Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur, lögg. fast. vidar@miklaborg.is s. 6941401.

Fasteignin Vesturberg 153

240.1 8 Herbergi 3 Stofur 5 Svefnherbergi 3 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1973
Fermetraverð : 541.025 Kr/m²
Byggingargerð : Raðhús
Fasteignamat : 107.400.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

viddi
Viðar Böðvarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Viðar stofnaði fasteignasöluna Fold árið 1994 og hefur starfað við fasteignasölu í yfir fjóra áratugi. Viðar er kvæntur og á eina uppkomna dóttur og tvö barnabörn. Hann hefur búið á Seltjarnarnesi frá 1980. Áhugamál Viðars eru allt sem viðkemur tónlist, ferðalög, lestur góðra bóka og allt sem viðkemur lífi og listum.

129.900.000 Kr.
Hafðu samband