Vesturbakki 11 - 102 815

Þorlákshöfn

Lýsing

Miklaborg og Byggingafélagið Hvati kynna: Geymsluhúsnæði að Vesturbakka 11 í Þorlákshöfn. Húsið skiptist í 12 einingar, 72 fm að stærð. Allar einingar eru með ræstivask og salerni. Húsið er á einni hæð með malbikaðri lóð, gert er ráð fyrir einu bílastæði fyrir framan hverja einingu.

Tilbúið til afhendingar !

Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Um er að ræða atvinnu/geymslu -húsnæði við Vesturbakka í Þorlákshöfn. Húsið skiptist í 12 einingar, hvert bil 72 fm að birtri stærð. Húsið er á einni hæð með malbikaðri lóð, gert er ráð fyrir einu bílastæði fyrir framan hverja einingu

Almenn lýsing samkvæmt skilalýsingu:

Húsið er byggt ofan á steypta sökkla. Hefðbundin staðsteypt plata, einangruð að innan með gólfhita. Neysluvatnslagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningum, rör í rör. Útveggir og þak hússins eru úr yleiningum, samlokueiningar frá Kingspan. Burðarvirki er límtré. Litur klæðninga að utanverðu er RAL7016 og að innan RAL 9010. Þakkantur er einfaldur, stálklæddur í sama lit og þakefni með utanáliggjandi álrennum og niðurfallsrörum í sama lit. Iðnaðarhurðir eru 4,35 m á hæð frá Héðni hf , litur RAL 7016, með rafmótoropnun. Gönguhurðir og gluggar eru úr viðhaldsfríu PVC plasti með tvöföldu einangrunargleri. Litur RAL 7016. Frárennslis og neysluvatnslagnir: Skólp‐ og regnvatnslagnir eru fullfrágengnar og tengdar fráveitukerfi í götu. Salerni eru fullfrágengin í hverri starfseiningu. Gólfniðurfall er fyrir innan allar innkeyrsluhurðir.

 

Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0,3% af væntanlegu brunabótamati.

 

Allar nánari upplýsingar gefur:

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

Fasteignin Vesturbakki 11 - 102

72.0 0 Herbergi 0 Stofur 0 Svefnherbergi 0 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2024
Fermetraverð : 345.833 Kr/m²
Byggingargerð : Atvinnuhúsnæði
Fasteignamat :

Nánari upplýsingar veitir:

Óskar Sæmann
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
24.900.000 Kr.
Hafðu samband