Valshlíð 10 102

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir til sölu glæsilega og einstaklega vel staðsetta fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð á horni Valshlíðar og Fálkahlíðar. Íbúðin er á 4. hæð og er 148,5 fermetrar, stór geymsla og 45 fm bílastæði, merkt 01B41, með bílskúrshurð sem er ekki inni í fermetrartölu íbúðar. Tvö baðherbergi eru í íbúðinni, tvennar svalir auk þaksvala. Einstaklega áhugaverð eign með aukinni lofthæð, vönduðum innréttingum, gólfsíðum gluggum og sérhannaðri lýsingu. Stílhrein og rúmgóð íbúð á frábærum stað við Hlíðarenda.

Komið er inn í forstofu með góðum gangi.

Við forstofuna er baðherbergi með sturtu.

Gengið er inn í þvottahús frá eldhúsi.

Eldhúsinnrétting er með terrazzo borðplötu og eyju.

Stofan er rúmgóð. Gott pláss er fyrir borðstofuborð.

Tvö herbergi með skápum og terrazzo borðplötum.

Hjónaherbergi, fataherbergi og baðherbergi er aðskilin frá aðalrými með rennihurð.

Vandaðar innréttingar og sérhönnuð lýsing. Aukin lofthæð og gólfsíðir gluggar.

Tvennar svalir - að norðan og vestan - sem ná til sumarsólar frá tvö á daginn til níu á kvöldin.

Aðgengi á þaksvalir sem eru í sameign sumra.

Geymslan er staðsett fyrir aftan bílskúrinn sem býður upp á góða nýtingarmöguleika.

Skjólgóður garður með bekkjum og leiktækjum.

Nánari upplýsingar gefur Vala Georgsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 6950015, vala@miklaborg.is

Fasteignin Valshlíð 10

148.5 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2020
Fermetraverð : 922.559 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 108.350.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

vaagf
Vala Georgsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Vala býr í Garðabæ og er bókmenntafræðingur. Hún býr með börnum og eiginmanni í Garðabæ og hefur lagt gjörva hönd á margt. Vala er löggiltur fasteignasali og löggiltur leigumiðlari.

137.000.000 Kr.
Hafðu samband