Trilluvogur 1 104

Reykjavík

Lýsing

Móeiður Svala lögg. fasteignasali og Miklaborg kynna í einkasölu: Vel skipulagt raðhús í þessu frábæra hverfi með auka íbúð á 1.hæð og tveimur bílastæðum í bílakjallara!


Frábært fjölskylduhús sem er 6-7 herb. endaraðhús á þremur hæðum skráð stærð 197,7 fm, þar af geymsla 10,6 fm. Eigninni fylgir sérafnotaréttir á lóð 76,4 fm og 6,6 fm svalir.

Tvö bílastæði í bílageymslu. Aukaíbúð á 1.hæð. Lofthæð í húsinu mikil eða allt að 3-4 metrar.


Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is

Nánari lýsing raðhússins:

2.hæð: Forstofa með fataskáp. Stofa og vel innréttað eldhús í alrými, baðherbergi og herbergi með fataskáp. Gengið er niður á 1.hæð hússins í sér þvottahús og þaðan beint inn í bílakjallara.

3.hæð: Tvö svefnherbergi með fataskápum, baðherbergi og opið rými sem býður upp á að bæta við svefnherbergi eða nýta sem sjónvarpsrými. 

1.hæð: Auka íbúð! Forstofa, baðherbergi, eldhús og stofa samlyggjandi og 1 svefnherbergi með fataskáp.


Helstu kostir

  • Aukin lofthæð
  • Vandaðar innréttingar frá HTH
  • Eldhústæki, frá AEG, veggofn, spanhelluborð, uppþvottavél, eyjuháfi
  • Baðherbergi með flísalögðum gólfum og hluti veggja
  • Borðplötur í eldhúsum og böðum úr steini
  • Milliveggir úr þrýstihertri frauðsteypu
  • K einangrunargler
  • Aðstaða fyrir rafbílahleðslu í bílastæðahúsi
  • Mynddyrasími
  • Sorp í djúpgámum
  • Ál-tré gluggar og hurðir
  • Gólfhiti á baðherbergjum
  • 2 bílastæði í bílakjallara 


Einstök hönnun íbúða og raðhúsa við Trilluvog gerir það að verkum að almenn rými eignanna eru mjög opin og björt. Spilar þar aukin lofthæð lykilhlutverk en hún nær allt frá þremur metrum upp í rúmlega fjóra metra.

Hannað af Teiknistofan Tröð. Lóðarhafi  og verktaki er Landris


Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is


 

Fasteignin Trilluvogur 1

197.7 6 Herbergi 2 Stofur 4 Svefnherbergi 3 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2019
Fermetraverð : 657.056 Kr/m²
Byggingargerð : Raðhús
Fasteignamat : 125.200.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

m2
Móeiður Svala Magnúsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Móeiður útskrifast sem löggiltur fasteigna- og skipasali vorið 2024. Fyrir utan gríðarlegan áhuga hennar á arkítektúr og innanhúshönnun þá hefur hún verið í hestamennsku frá ungum aldri og elskar alla útivist. Hún er alin upp í hlíðunum Reykjavík en býr nú í Garðabænum.

899-8278
129.900.000 Kr.
Hafðu samband