Tómasarhagi 36 107
ReykjavíkLýsing
Miklaborg kynnir: Sérlega fallega og sjarmerandi eign í tvíbýlishúsi að Tómasarhaga 36 á eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Um er að ræða 295,7 fm eign á tveimur hæðum með 55,1 fm bílskúr sem hefur að hluta verið innréttaður sem stúdíóíbúð. Útgengi er úr borðstofu út á svalir og á góðan lokaðan sérafnotareit. Umhverfis húsið sem hefur fengið gott viðhald er snyrtilegur afgirtur garður. Frábær staðsetning í grónu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, útivistarsvæði við Ægisíðuna og alla helstu þjónustu
***Bókið einkaskoðun***
Nánari lýsing
Neðri hæð
Forstofa komið er inn um sér inngang í flíslagða forstofu með fataskáp.
Stigapallur og hol er opið og þar liggur teppalagður stigi upp á efri hæðina. Hol fyrir framan herbergi er nýtt sem sjónvarpsrými.
Hjónaherbergi er sérlega rúmgott með góðu skápaplássi. Inn af hjónaherberginu er fullbúið baðherbergi með ''walk-in'' sturtu.
Herbergi I er rúmgott unglingaherbergi.
Herbergi II er rúmgott unglingaherbergi.
Herbergi III er lítið aukaherbergi.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu undir vaski, upphengdu salerni og ''walk in'' sturtu. Endurnýjað að fullu árið 2020.
Þvottahús er með glugga og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Lagnarými/geymsla var áður innangengt í bílskúr.
Efri hæð
Forstofa komið er inn um sér inngang í flísalagða forstofu.
Stigapallur og hol er opið og þar liggur stigi niður á neðri hæðina.
Gestasnyrting er flísalögð með upprunalegri fallegri innréttingu.
Eldhús er með upprunalegri klassískri innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi og borðkrók. Opnanlegur gluggi er í eldhúsi.
Borðstofa er tengd eldhúsi og er opin að stofum. Útgengi er úr borðstofu út á svalir og á góðan lokaðan sérafnotareit. Léttur veggur er á milli eldhúss og borðstofu.
Þrjár stofur þrjár samliggjandi stofur með útsýni til sjávar. Einstakt stofurými sem hentar vel fyrir stærri veisluhöld.
Bílskúr og aukaíbúð.
Búið að útbúa stúdíóíbúð í hluta bílskúrs. Íbúðin skiptist í alrými sem samanstendur af einföldu eldhúsi, svefnaðstöðu, stofu og baðherbergi. Íbúðin er með gluggum sem vísa inn í bakgarð,
Hinn hlutinn er notaður sem hefðbundin bílskúr.
Lóð, garður og sérafnotareitur
Lóðin er snyrtileg með hellulögðu bílaplani. Eigninni tilheyrir rúmgóður afgirtur sérafnotareitur. Umhverfis húsið er snyrtilegur garður sem hefur verið vel viðhaldið. Í bakgarði er nýleg sauna sem er í sameiginlegri eigu hússins.
Viðhald
Húsið var múrviðgert árið 2025. Skipt var um þakjárn og gert við þakkant árið 2018. Garður að framan tekin í gegn og sett upp grindverk árið 2023. Smíðuð sauna í bakgarði sem eignin deilir með íbúum efri hæðar. Útbúinn stúdííbúð í bílskúr árið 2015. Til stendur að mála húsið sumar 2026.
Allar nánari upplýsingar veitir
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is