Tjörn lóð 27 806

Biskupstungur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Gott sumarhús í landi Tjarnar í Bláskógabyggð skammt frá Syðri Reykjum. Húsið er á litlu sumarhúsasvæði með útsýni í allar áttir. Lóðin er 5398 fm leigulóð með leigusamningi til 50 ára frá 2013. Húsið er skráð 40,1 fm hjá fasteignaskrá en til viðbótar er ca. 9 fm geymsla og svefnloft. Smíði hússins virðist góð og er pallur umhverfis húsið með skjólgirðingu og heitum potti.

Sjá kynningu um eignina hér https://www.littlebluehouseiceland.com/video-tour

Nýlegt harðparket er á gólfum en komið er inn í forstofu með fatahengi.  Tvö svefnherbergi annað með kojum og hitt rúmar tvíbreitt rúm.  Eldhús og stofa í opnu björtu rými þaðan sem er útgengt á pall.  Baðherbergi er með sturtuklefa, skápainnréttingu undur handlaug og flísalagt gólf.  Svefnloft er til viðbótar við uppgefna fermetra og þar gætu 4-6 manns gist en þar er opnanlegt fag.

Inntaksgeymsla er til hliðar við aðalinngan bústaðar og einnig er ca. 9 fm verkfærageymsla þar sem mætti t.d. koma fyrir þvottavél.

Lóðarleiga er rúmlega 100 þús á ári og kostnaður vegna hitaveitu ca. 10 þús á mánuði.  Lóðarleigusamningur gildir í 50 ár frá 2013.

Staðsetning hússins er góð, stutt á marga þekktar perlur suðurlands ásamt golfvöllum Kiðjabergs, Öndverðarness og Flúða. 


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn löggiltur fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Fasteignin Tjörn lóð 27

40.1 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1998
Fermetraverð : 798.005 Kr/m²
Byggingargerð : Sumarbústaður
Fasteignamat : 24.900.000

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
32.000.000 Kr.
Hafðu samband