Opið hús: 13.12.2025, 14:00 - 13.12.2025, 14:45

Þverholt 13 105

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir:

Fallegt sex hæða lyftuhús á frábærum stað rétt við miðbæ Reykjavíkur.

Eignirnar verða afhentar fullbúnar með fallegu harðparketi og vönduðum sérsmíðum innréttingum frá Sérverki. Traustur byggingaraðili: Sérverk ehf síðan 1991.


Allar nánari upplýsingar veita:

Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is

Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Íbúð 502

Vel skipulögð og björt 106,1 fm, fjögurra herbergja íbúð á fimmtu hæð.

Eignin skiptist í forstofu með fataskáp. Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi.Tvö góð svefnherbegi með skápum. Inn af forstofu er baðherbergi með sturtu og fallegri innréttingu. Eldhús er með fallegri sérsmíðaðri innréttingu og eldhúseyju. Frá eldhúsi er opið inn í rúmgott alrými, þar sem einnig eru stofa og borðstofa. Úr alrými útgengt út á yfirbyggðar svalir með opnanlegum svalalokunum. Þvottahús með flísum á gólfi og skolvask. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og fallegt Pergo parket á öðrum góflum. Allar íbúðir eru með gólfhita.


Þverholt 13 er staðsteypt hús, einangrað að utan og klætt með fallegum ljósum flísum. Skjólsöm baklóð og bílakjallari en hægt er að kaupa sér stæði með flestum íbúðum. Stutt er í alla þjónustu og göngufæri við miðbæ Reykjavíkur.


Sjá sölusíðu hér með teikningum og skilalýsingu.


Byggingaraðili er Sérverk ehf var stofnað árið 1991 og er þekkt fyrir vönduð og góð vinnubrögð.

Fasteignin Þverholt 13

108.3 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2024
Fermetraverð : 1.098.800 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 95.600.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

oli
Ólafur Finnbogason
Eigandi og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Ólafur Finnbogason hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 2002. Ólafur er menntaður grunnskólakennari og með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM). Ólafur er giftur og á tvö börn. Ólafur er uppalinn Seltirningur en býr í Vesturbænum. Ólafur er mikill áhugamaður um skot- og stangveiði. Einnig hefur Ólafur þjálfað handbolta með hléum síðan 1991.

119.000.000 Kr.
Hafðu samband