Þverholt 11 105

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg / Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali kynna heila húseign miðsvæðis í Reykjavík. Eignin getur nýst undir ýmsa starfsemi en síðast var Listaháskóli Íslands í húsinu. Húsið var upphaflega hannað undir íbúðir og skrifstofur.


Eignin getur verið tilbúin til afhendingar við kaupsamning.

Frábær staðsetning og miklir möguleikar.

Nánari lýsing. Húsið er 6 hæðir auk þess sem bílakjallari og geymslur eru í kjallara. Jarðhæð er með mikilli lofthæð og rýmið er bjart enda með stórum gluggum. Efri hæðir eru meira og minna opin vinnurými sem auðveldlega má breyta til samræmis við þarfir kaupanda. Svalir eru á hverri hæð og frábært útsýni frá efri hæðum hússins. Spennandi Þróunareign í 105 Reykjavík með fjölbreytta nýtingarmöguleika fyrir blandaða byggð íbúða, skrifstofa og verslunar. Einstakt tækifæri til virðisaukandi uppbyggingar í eftirsóttu hverfi með góðu aðgengi og þjónustu. Á lóðinni eru heimiluð 14 bílastæði auk 9 stæða í bílakjallara.


Húsið er laust til afhendingar við kaupsamning. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík.


Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is


Fasteignin Þverholt 11

4127.1 24 Herbergi - Stofur - Svefnherbergi - Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1984
Fermetraverð : 0 Kr/m²
Byggingargerð : Atvinnuhúsnæði
Fasteignamat : 964.300.000

Nánari upplýsingar veitir:

þrö
Þröstur Þórhallsson
Eigandi og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Þröstur hefur starfað við sölu fasteigna frá árinu 1996.Hann fékk löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali vorið 2000. Þröstur býr í Fossvoginum og er Víkingur en hann spilaði bæði fótbolta og handbolta með Víking á yngri árum, er giftur og á þrjú börn. Áhugamál eru íþróttir og útivera. Golf og skák eru í miklu uppáhaldi og þess má geta að Þröstur er stórmeistari í skák, fyrrverandi Íslandsmeistari og þrautreyndur landsliðsmaður.

0 Kr.
Hafðu samband