Þorrasalir 7 201

Kópavogur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Laus strax. Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftufjölbýli með rúmgóðum yfirbyggðum svölum í suðvestur og stæði í bílageymslu. Fallegt útsýni til suðurs frá svölum. Allar upplýsingar um eignina veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is. Birt stærð eignarinnar skv. fasteignaskrá HMS er 95,5 fm, íbúðin er 87 fm og geymsla á jarðhæð 8,5 fm.


Nánari lýsing: Gólfefni eru harðparket á alrými og herbergjum, flísar í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Forstofa er rúmgóð, með  glugga og góðum fataskáp.
Eldhús með L-laga innrétting úr eik með efri og neðri skápum,  keramik helluborð, stálofn og stálviftu. Stáluppþvottavél og stál ísskápur fylgja.  Eyja er laus með hvítum skúffum. Eldhús er opið við stofu og borðstofu.
Stofa/borðstofa er björt með glugga í vestur og útgengi út á rúmgóðar suðvestur svalir sem verið er að setja svalalokun á en íbúðin afhendist þannig og framkvæmd að fullu greidd af seljanda.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp.
Barnaherbergi með fataskáp. 
Baðherbergi er flísalegt í hólf og gólf með baðkari með sturtuaðstöðu.  Eikarinnrétting með speglaskáp fyrir ofan, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús er innan íbúðar, með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur á vegg.
Í sameign:
Geymsla íbúðarinnar er á jarðhæð í sameign  ásamt sameiginlegri hjóla-og vagnageymslu.                                   
Stæði í bílageymslu er merkt íbúðinni.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is


Fasteignin Þorrasalir 7

95.5 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2013
Fermetraverð : 835.602 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 78.200.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
79.800.000 Kr.
Hafðu samband