Þóristún 18 800

Selfoss

Lýsing

Miklaborg kynnir: Fallegt 246,6 fm einbýlishús á einni hæð við Þóristún 18, Selfossi. Eignin skiptist í forstofu, 4 svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, sólskála, tvö baðherbergi, þvottahús og tvöfaldan bílskúr.

Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Þóristún 18 er timburhús á steyptri plötu klætt með flísum, þakkantur klæddur með áli og þak með bárujárni, í húsinu er gólfhiti.

Nánari lýsing

Komið er inn í forstofu. Stofa, borstofa og eldhús eru í opnu rými með útgengi í sólskála um stóra rennihurð. Úr sólskála er útgengi út á steypta verönd með heitum potti sem er í glerhúsi. Eldhús með hnotu innréttingu og dökkri borðplötu, tveimur ofnum í vinnuhæð, uppþvottavél í vinnuhæð, helluborði og plássi fyrir breiðan ísskáp. Hjónaherbergi með stórum fataskáp og sér baðherbergi, með sturtu, upphengdu saleni, handklæðaofni og innréttingu með vask og spegli. Útgengt er út hjónaherbergi á sólpall þar sem heiti potturinn er. þrjú barnaherbergi eru á sama gangi öll með fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, handklæðaofni, sturtu og innréttingu með vask og spegli. þegar farið er inn í þvottahús er smá anddyri fyrir bílskúrinn þar sem er góður fataskápur og hengi, þaðan er gengið inn í þvottahúsið og bílskúrinn. þvottahús er með innréttingu með skol vaski og plássi fyrir þvotavél og þurrkara, úr þvottahúsi er útgengt út á steypta verönd með þvottasnúru. Bílskúrinn er tvöfaldur með tvær hurðar og hægt að fara út um gönguhurð, Bílskúr er rúmgóður með steyptu gólfi, rafmagnshurða opnurum, heitu og köldu vatni og rúmgóðu geymslulofti yfir hluta skúrsins og þvottahúsinu (ath geymsluloft ekki hluti af fm tölu). fyrtir framan bílskúr er steypt plan einnig með fram húsi og aftur fyrir þar sem búið að er að leggja rafmagn og þar er gert ráð fyrir geymsluskúr á lóðamörkum.


Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson Löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Fasteignin Þóristún 18

246.6 5 Herbergi 2 Stofur 4 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2012
Fermetraverð : 567.315 Kr/m²
Byggingargerð : Einbýlishús
Fasteignamat : 126.150.000
Þvottahús : Sér

Nánari upplýsingar veitir:

sss
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
139.900.000 Kr.
Hafðu samband