Tangabryggja 18 110

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsileg tveggja herbergja íbúð á annari hæð í nýlegu lyftuhúsi í bryggjuhverfi Grafarvogs. Mjög gott skipulag - stórar vestursvalir. Húsið er byggt af ÞG verk árið 2018. íbúðin skiptist í forstofu með fataskápum, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, eldhús stofu og svefnherbergi auk geymslu og hjóla og vagnageymslu.

Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is, s. 694-1401

Forstofa með góðu skápaplássi. 
Eldhús er opið við stofu, gott skápa- og borðpláss, innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgir. Electrolux keramikhelluborð og bakaraofn.
Stofa/borðstofa mjög bjart rými með útgengi út á sólríkar suðvestursvalir.
Baðherbergi er rúmgott,  flísar á gólfi og við sturtu. Ljós innrétting, sturta með beinu aðgengi og glervegg, upphengt salerni, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi er með skáp og rennihurð..
Í kjallara er sér geymsla íbúðarinnar. Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Gólfefni íbúðarinnar er harðparket fyrir utan baðherbergi. Innréttingar eru frá GKS framleiddar af Nobilia. Góð bílastæði eru við húsið. 

Mjög góð íbúð í vönduðu, fjölbýli á rólegum stað í bryggjuhverfi Grafarvogs. Frábær fyrstu kaup! 

  Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is, s. 694-1401


Fasteignin Tangabryggja 18

45.8 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2018
Fermetraverð : 1.080.786 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 46.600.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

viddi
Viðar Böðvarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Viðar stofnaði fasteignasöluna Fold árið 1994 og hefur starfað við fasteignasölu í yfir fjóra áratugi. Viðar er kvæntur og á eina uppkomna dóttur og tvö barnabörn. Hann hefur búið á Seltjarnarnesi frá 1980. Áhugamál Viðars eru allt sem viðkemur tónlist, ferðalög, lestur góðra bóka og allt sem viðkemur lífi og listum.

49.500.000 Kr.
Hafðu samband