Stórhöfði (leiga) 17 110

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Til leigu 210,2 fm sérlega vel staðsett húsnæði á jarðhæð við Stórhöfða 17. Húsnæðið hentar vel undir verslun, þjónustu eða jafnvel sem skrifstofuhúsnæði. Allt húsnæðið er í mjög góðu standi og var endurnýjað að innan fyrir nokkrum árum, ath að hægt er að fjarlægja inntréttingar sem eru á staðnum. Stórir og áberandi gluggar snúa að götu til suðurs og vesturs. Sýnileiki húsnæðisins er mikill, aðgengi gott og næg bílastæði eru við húsið. Húsnæðið er laust strax.

Aðalarými er opinn salur með stórum gluggum í tvær áttir. Búið er að stúka af fundarherbergi inn af salnum. Tvær snyrtingar eru innst í rýminu. Einnig er kaffistofa/starfsmannaaðstaða í sér rými við bakútgang. Um er að ræða virðisaukaskatts húsnæði.

Mjög áberandi húsnæði við fjölfarin gatnamót.

Allar nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Fasteignin Stórhöfði (leiga) 17

210.2 0 Herbergi - Stofur 0 Svefnherbergi - Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1992
Fermetraverð : 0 Kr/m²
Byggingargerð : Verslun
Fasteignamat : 83.050.000

Nánari upplýsingar veitir:

sv
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali

Svan Gunnar Guðlaugsson hefur um 30 ára reynslu úr bankageiranum og starfaði þar frá 1981 bæði hjá Íslandsbanka og Byr síðast sem útibússtjóri. Svan hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum starf sitt á fasteignamarkaðnum og þekkir vel til smærri sem stærri mála húsnæðismarkaðsins hvort heldur er í atvinnu- eða íbúðarhúsnæði. Svan er mikill golfari og áhugamaður um íþróttir enda mikill keppnismaður. Svan er giftur og á 4 dætur.

0 Kr.
Hafðu samband