Opið hús: 23.08.2026, 16:00 - 23.08.2026, 16:45

Steinhöfði 4 110

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir:

Vel skipulagðar og vandaðar tveggja til fimm herbergja íbúðir á frábærum útsýnisstað í nýju hverfi við Ártúnshöfðann. Flestar íbúðir með stæði í bílgeymslu. Vandaðar innréttingar frá Voke 3 og steinn á borðum. Sérstæð loftræsting í öllu íbúðum sem eykur loftgæði og takmarkar ryk, dregur úr rakamyndun og minnkar frjókorn í loftinu. Sérverk ehf, traustur byggingaverktaki í 35 ár.


Sýni samdægurs bókið skoðun hjá Svan í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Íbúð 601: Góð 3ja herbergja íbúð á 6.hæð með tvennum þaksvölum 18,6 fm og 8,6 fm í vestur og norður ásamt stæði í bílgeymslu. Íbúðin er á tveimur hæðum og er skráð 117,4 fm, þar af geymsla 17,9 fm. Komið inn á neðri hæð í anddyri með skáp. Eldhús er með vandaðri innréttingu, undirlímdur vaskur og steinn á öllum borðum. Vönduð tæki frá Ormsson. Eldhús skiptir upp stofu og borðstofu. Baðherbergi er með sturtu, góð innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Steinn á borðplötu og undirlímdur vaskur. Svefnherbergi með fataskáp. Efri hæð tengd með stiga og komið í hol með fataskáp. Svefnherbergi með fastaskáp. Baðherbergi er með sturtu og góð innrétting. Steinn á borðplötu og undirlímdur vaskur. Eignin er með sérstæðri loftræstingu sem eykur loftgæði og dregur úr rakamyndun. Eignin afhendist fullbúinn án megin gólfefna. Afhending fljótlega.


Heimasíða verkefnisins er hér


Allar nánari upplýsingar veita:

Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is

Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Íris Arna Geirsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Fasteignin Steinhöfði 4

117.4 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2026
Fermetraverð : 1.021.295 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 8.890.000

Nánari upplýsingar veitir:

sv
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali

Svan Gunnar Guðlaugsson hefur um 30 ára reynslu úr bankageiranum og starfaði þar frá 1981 bæði hjá Íslandsbanka og Byr síðast sem útibússtjóri. Svan hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum starf sitt á fasteignamarkaðnum og þekkir vel til smærri sem stærri mála húsnæðismarkaðsins hvort heldur er í atvinnu- eða íbúðarhúsnæði. Svan er mikill golfari og áhugamaður um íþróttir enda mikill keppnismaður. Svan á 4 dætur.

119.900.000 Kr.
Hafðu samband