Steinhöfði 2-4

Steinhöfði 2-4

Vel skipulagðar og vandaðar tveggja til fimm herbergja íbúðir á frábærum útsýnisstað í nýju hverfi við Ártúnshöfðann. Flestar íbúðir með stæði í bílgeymslu. Vandaðar innréttingar frá Voke 3 og steinn á borðum. Sérstæð loftræsting í öllu íbúðum sem eykur loftgæði og takmarkar ryk, dregur úr rakamyndun og minnkar frjókorn í loftinu.

Frábær hönnun

Vel var hugað að öllum þáttum í hönnuninni og Lumix sá um alla ljósa- og rafmagnshönnun. Þá sá Mirra um alla hljóðhönnun og það eru þykkar plötur í húsinu sem uppfylla allar kröfur.
Hver íbúð hefur einnig sitt eigið loftræstikerfi sem stuðlar að betri loftgæðum í öllum rýmum íbúðarinnar. 

Nýtt nútímalegt borgarhverfi í miðri Reykjavík með öllu sem þarf fyrir lífið eins og þú vilt hafa það

Á Borgarhöfða verða nýjar verslanir, veitingar, menning og mannlíf í göngufæri. Hverfið verður fjölskylduvænt og grænt með pláss fyrir bíla í kjöllurunum. Greitt aðgengi er að stofnbrautum og Strætó, og bráðum Borgarlína, gefur möguleika á bílléttum lífsstíl.

Kjartan
Kjartan Ísak Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali, B.Sc í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík

Kjartan er með B.Sc gráðu í viðskiptafræði frá HR ásamt sveinsprófi í matreiðslu frá Hótel og matvælaskólanum. Starfsferill Kjartans er fjölbreyttur og hefur Kjartan m.a. starfað sem framkvæmdastjóri, vörumerkjastjóri, verkefnastjóri og matreiðslumaður. Kjartan er kvæntur og á tvö börn.

sv
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali

Svan Gunnar Guðlaugsson hefur um 30 ára reynslu úr bankageiranum og starfaði þar frá 1981 bæði hjá Íslandsbanka og Byr síðast sem útibússtjóri. Svan hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum starf sitt á fasteignamarkaðnum og þekkir vel til smærri sem stærri mála húsnæðismarkaðsins hvort heldur er í atvinnu- eða íbúðarhúsnæði. Svan er mikill golfari og áhugamaður um íþróttir enda mikill keppnismaður. Svan á 4 dætur.

írisarna
Íris Arna Geirsdóttir
Löggiltur fasteignasali, M.A markaðsfræðingur

Íris útskrifaðist með B.Sc gráðu í Sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í Markaðsfræðum við háskóla á Ítalíu. Íris hefur mikla reynslu af sölu- og markaðsmálum og hefur meðal annars unnið sem markaðsstjóri. Íris er uppalin í Grafarvogi og býr í Úlfarsárdal ásamt eiginmanni sínum og dætur.

oli
Ólafur Finnbogason
Eigandi og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Ólafur Finnbogason hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 2002. Ólafur er menntaður grunnskólakennari og með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM). Ólafur er giftur og á tvö börn. Ólafur er uppalinn Seltirningur en býr í Vesturbænum. Ólafur er mikill áhugamaður um skot- og stangveiði. Einnig hefur Ólafur þjálfað handbolta með hléum síðan 1991.