Opið hús: 23.08.2026, 16:00 - 23.08.2026, 16:45

Steinhöfði 2 110

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir:

Vel skipulagðar og vandaðar tveggja til fimm herbergja íbúðir á frábærum útsýnisstað í nýju hverfi við Ártúnshöfðann. Flestar íbúðir með stæði í bílgeymslu. Vandaðar innréttingar frá Voke 3 og steinn á borðum. Sérstæð loftræsting í öllu íbúðum sem eykur loftgæði og takmarkar ryk, dregur úr rakamyndun og minnkar frjókorn í loftinu. Sérverk ehf, traustur byggingaverktaki í 35 ár.


Sýni samdægurs bókið skoðun hjá Svan í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Íbúð 203: Góð 2ja herbergja íbúð á 2.hæð með 6,2 fm svölum í vestur. Íbúðin er skráð 70,9 fm, þar af geymsla 8,2 fm. Komið inn í anddyri með skáp. Eldhús er með vandaðri innréttingu, undirlímdur vaskur og steinn á öllum borðum. Vönduð tæki frá Ormsson. Eldhús skiptir upp stofu og borðstofu. Baðherbergið er með sturtu, góð innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Steinn á borðplötu og undirlímdur vaskur. Tvö svefnherbergi með fataskápum. Eignin er með sérstæðri loftræstingu sem eykur loftgæði og dregur úr rakamyndun. Eignin afhendist fullbúinn án megin gólfefna. Afhending fljótlega.


Heimasíða verkefnisins er hér


Allar nánari upplýsingar veita:

Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is

Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Íris Arna Geirsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is


Steinhöfði 2-4 er 22 íbúðar hús með tveimur stigagöngum og eru flestar íbúðir með stæði í bílgeymslu. Alls eru 141 íbúð á lóðinni í fjórum húsum. Húsið er teiknað af Ask arkitektum og var við hönnun húsins haft að leiðarljósi að gera íbúðirnar bjartar og vel skipulagðar. Fallegur inngarður er sunnanmegin við húsin og stórbrotið útsýni úr flestum íbúðum við Steinhöfða og Eirhöfað 1a og 1b sem kemur í sölu síðar.

Borgarhöfðinn er stærsta uppbyggingasvæði í Reykjavík og verða þar reistir 3 skólar ásamt verslun og þjónustu. Hverfið er mjög miðsvæðis og stutt í helstu stofnanir og þjónustu.

Nánari upplýsingar um svæðið er hægt að sjá á heimasíðu um Borgarhöfðann. www.borgarhofdi.is

Fasteignin Steinhöfði 2

70.9 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2026
Fermetraverð : 957.687 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 6.470.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

sv
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali

Svan Gunnar Guðlaugsson hefur um 30 ára reynslu úr bankageiranum og starfaði þar frá 1981 bæði hjá Íslandsbanka og Byr síðast sem útibússtjóri. Svan hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum starf sitt á fasteignamarkaðnum og þekkir vel til smærri sem stærri mála húsnæðismarkaðsins hvort heldur er í atvinnu- eða íbúðarhúsnæði. Svan er mikill golfari og áhugamaður um íþróttir enda mikill keppnismaður. Svan á 4 dætur.

67.900.000 Kr.
Hafðu samband