Stakkholt 2b (íbúð501)
105 ReykjavíkStakkholt 2b (íbúð501) 105
ReykjavíkLýsing
Miklaborg kynnir: Virkileg góð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 5. hæð í sérlega vönduðu og viðhaldsléttu lyftuhúsi byggt 2014. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu þar sem búið er að koma fyrir hleðslustöð.
Eignin er skráð samkvæmt HMS 104,8 fm þar af er geymsla 8,2 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, 2 rúmgóð herbergi, eldhús, borðstofu, stofu og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Úr stofu er gengið út á svalir til suðurs.
Aukin lofthæð er í íbúðinni.
Vel staðsett íbúð á vinsælum og rólegum stað í göngufæri við fjölbreytta þjónustu, sundhöll, verslanir, kaffi og veitingahús.
Nánari uppl. veitir: Bára Gunnlaugsdóttir, lögg. fasteignasali í síma 8998809 eða bara@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri á 1.hæð hússins með mynddyrasímakerfi.
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum innbyggðum fataskápum. Þaðan tekur við sjónvarpshol.
Eldhús: Er með fallegri innréttingu, gott vinnupláss og innbyggð uppþvottavél. Opið er inn í stofu.
Stofa/borðstofa: Er rúmgóð og björt. Úr stofunni er gengið út á stórar skjólgóðar 7,3 fm svalir til suðurs en möguleiki er að láta loka svölunum með glerlokun.
Hjónaherbergi: Er mjög rúmgott með góðum skápum. Fallegt útsýni til norðurs.
Herbergi II: Við hlið stofu er auka svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Er með sturtu og fallegri innréttingu. Innrétting er utan um þvottavél og þurkara.
Geymsla: Er í sameign og telur 8,2 fm ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Flísar eru á baðherbergi en eikarharðparket á öðrum gólfum.
Falleg eign á frábærum stað við miðborg Reykjavíkur.
Nánari uppl. veitir: Bára Gunnlaugsdóttir, lögg. fasteignasali í síma 8998809 eða bara@miklaborg.is