Spítalastígur 8 101
ReykjavíkLýsing
Miklaborg kynnir: Glæsilegt vel við haldið 401,7 fm einbýlishús á þremur hæðum á frábærum stað í hjarta miðborgarinnar. Húsið stendur á eignarlóð og hefur verið skipt upp í fjölskylduheimili og gistiheimili en skipulag hússins býður auðveldlega upp á útleigustarfsemi með fjórum aðskildum einingum.
Nánari upplýsingar veita:
Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is og
Gabríel Máni Hallsson lögg. fasteignasali í síma 7722661 eða gabriel@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Íbúðin sjálf stendur í viðbyggingu sem var fullkláruð árið 2017 við austur enda hússins.
Gengið er inn af sameiginlegu anddyri í forstofu íbúðarinnar á jarðhæð þar sem stigahús og þvotthús eru. Á jarðhæðinni eru snyrtilegt og rúmgott eldhús ásamt stofu. Þaðan er útgengt á fallega og skjólgóða verönd með palli sem snýr til suðvesturs.
Á annari hæð er baðherbergi, rúmgott svefnherbergi og hjónasvíta með baðherbergi og stórum svölum til vesturs.
Á efstu hæð eru tvö svefnhergbergi þar sem útgengt er á svalir úr öðru þeirra á suður hlið hússins.
Aukaíbúð:
Í kjallara hefur verið útbúin íbúð með þrem svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi og stofu. Útgengt í sameiginlegan garð á bakhlið hússins.
Gistiheimilið:
Á jarðhæð er setustofa og rúmgóð borðstofa, eldhús, stórt svefnherbergi og baðherbergi. Útgengt í sameiginlegan garð frá stofu.
Á annari hæð eru fimm svefnherbergi, baðherbergi og stofa.