Opið hús: 08.06.2026, 12:15 - 08.06.2026, 12:45

Sóltún 7 105

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Þriggja herbergja íbúð á 3 hæð í lyftu húsi við Sóltún 7, Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús, tvö svefnherbergi, geymslu innan íbúðar, geymslu í kjallara og bílastæði í lokuðum bílakjallara.


Bókaðu skoðun, Óskar Sæmann í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Sóltún 7 er 7 hæða hús auk kjallara, 25 íbúðir í einum stigangi með lyftu.

Nánari lýsing

Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara og efri skápum. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, sturtuklefa með glerskilrúmi, innréttingu með vask, speglaskáp og góðum skáp með hillum og handklæðaofni. Stofa og borðstofa í opnu alrými með gluggum til suðurs og útgengi út á yfirbyggðar svalir. Eldhús með eikar innréttingu með ljósri borðplötu, ofni í vinnuhæð, helluborði, viftu og plássi fyrir uppþvottavél og ísskáp. Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataksápum og glugga til suðurs. Barnaherbergi með fataskáp og glugga. Lítil geymla er innan íbúðar. 5,9 fm sér geymsla er í kjallara sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. sérmerkt bílastæði í lokðuðum bílakjallara fylgir eigninni.

Gólfefni íbúðarinnar er parket nema á votrýmum þar sem eru flísar


Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

Fasteignin Sóltún 7

103.4 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2000
Fermetraverð : 846.228 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 88.000.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

sss
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
87.500.000 Kr.
Hafðu samband