Skólavörðustígur 2a 101

Reykjavík

Lýsing

Móeiður Svala lögg. fasteignasali og Miklaborg kynna: Frábæra einingu sem er skráð vörugeymsla við Skólavörðustíg, 101 Reykjavík. Birt stærð er 26,8 fm. raunstærð er meiri. Eignarlóð samkvæmt þinglýstri yfirlýsingu frá maí 1993.

Hentar vel fyrir einstakling eða par sem vill njóta miðborgarlífsins.


Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is

Vel skipulögð og björt eining með fallegu eldhúsi og stofu með mikilli lofthæð. Svefnloft með góðri aðstöðu og baðherbergi með þvottaaðstöðu og sturtu.


Komið er inn á pall og þaðan í forstofu. Úr forstofu er gengið inn í bjart og opið aðalrými með eldhúsaðstöðu og stofu í sameiginlegu rými. Eldhúsið er með snyrtilegum innréttingum og glerskápum. Frá aðalrými liggja tröppur upp á svefnloft með góðri svefnaðstöðu. Gengið er niður í baðherbergi með þvottaaðstöðu, salerni, handlaug, speglaskáp með lýsingu, sturtu og handklæðaofni. Fyrir framan inngang er um 20 fm sólpallur sem nýtist vel yfir sumartímann.


Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is


Fasteignin Skólavörðustígur 2a

26.8 0 Herbergi 1 Stofur - Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1910
Fermetraverð : 1.638.060 Kr/m²
Byggingargerð : Vörugeymsla
Fasteignamat : 15.850.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

m2
Móeiður Svala Magnúsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Móeiður útskrifast sem löggiltur fasteigna- og skipasali vorið 2024. Fyrir utan gríðarlegan áhuga hennar á arkítektúr og innanhúshönnun þá hefur hún verið í hestamennsku frá ungum aldri og elskar alla útivist. Hún er alin upp í hlíðunum Reykjavík en býr nú í Garðabænum.

899-8278
43.900.000 Kr.
Hafðu samband