Skólabraut 10 170

Seltjarnarnes

Lýsing

Miklaborg kynnir: TIL SÖLU EÐA LEIGU - 500 m2. einbýlishús þar sem rekið hefur verið meðferðarheimili með 11 svefnherbergjum. Húsnæðið sem er til afhendingar strax er að öðru leyti með stórum stofum, eldhúsi, snyrtingum, þvottahúsi ofl. Stór sólríkur suðurgarður.

 

Frábær staðsetning á Seltjarnarnesi rétt við sundlaug og heilsurækt.

 


Samþykkt deiliskipulag fyrir 9 íbúðir

Frábært þróunartækifæri á einstökum stað á Seltjarnarnesi.
Til sölu er 500 fermetra einbýlishús á þremur hæðum á eftirsóttum stað á Seltjarnarnesi. Fyrir húsið liggur samþykkt deiliskipulag sem heimilar uppbyggingu 9 íbúða með einu bílastæði fyrir hverja íbúð.

Samkvæmt samþykktu deiliskipulagi er heimilt að:

  • Skipta húsinu upp í 9 íbúðir
  • Setja svalir á 2. hæð (norður- og suðurhlið)
  • Byggja nýtt stigahús með lyftu og sameiginlegum inngangi fyrir allt húsið
  • Breyta þakformi á 3. hæð
  • Gera 1 bílastæði fyrir hverja íbúð
  • Samkvæmt eldra skipulagi er heimilt að setja smáhýsi eða geymslur á lóð

Möguleikar á aukinni byggingarheimild:

Við samþykkt aðaluppdrátta er gert ráð fyrir að 2. hæð verði stækkuð, og heildarstærð hússins geti þá orðið allt að 590 fm.


Húsið er staðsett á rólegum og grónum stað á Seltjarnarnesi, í nálægð við sjóinn, útivistarsvæði og alla helstu þjónustu. Einstakt tækifæri fyrir fjárfesta eða framkvæmdaaðila sem vilja þróa vandað fjölbýli á einum eftirsóttasta stað höfuðborgarsvæðisins.

Fasteignin Skólabraut 10

500.7 18 Herbergi 3 Stofur 11 Svefnherbergi 4 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1950
Fermetraverð : 0 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 213.750.000

Nánari upplýsingar veitir:

þrö
Þröstur Þórhallsson
Eigandi og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Þröstur hefur starfað við sölu fasteigna frá árinu 1996.Hann fékk löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali vorið 2000. Þröstur býr í Fossvoginum og er Víkingur en hann spilaði bæði fótbolta og handbolta með Víking á yngri árum, er giftur og á þrjú börn. Áhugamál eru íþróttir og útivera. Golf og skák eru í miklu uppáhaldi og þess má geta að Þröstur er stórmeistari í skák, fyrrverandi Íslandsmeistari og þrautreyndur landsliðsmaður.

0 Kr.
Hafðu samband