Skógarvegur 6 103

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsileg endaíbúð á 1. hæð með rúmlega 20m² sérafnotafleti til suðurs . Eigninni fylgir 13,4 m² geymsla ásamt stæði í bílageymslu merkt B-69. Hjónherbergi er með fataherbergi og þvottahús með sérsmíðaðri innréttingu er inn af eldhúsi. Eldhús og stofa eru samliggjandi. Steinn á borðum. Eldhús með eyju og stofan rúmgóð og björt með útgengi á suðurverönd. Þar er tengi fyrir rafmagnspott og frárennsli.


Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þóhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is

NÁNARI LÝSING: Glæsileg endaíbúð á 1. hæð. Eignin skiptist í hol og rúmgott anddyri, hjónherbergi með fataherbergi, barnaherbergi, baðherbergi og sér þvottahús inn af eldhúsi. Eldhús og stofa eru samliggjandi. Eldhús með eyju og stofan rúmgóð og björt með útgengi á sérafnotaflötinn. Hiti er í gólfum og og vandaðar innréttingar. Elhústæki eru frá AEG og innbyggður örbylgjuofn í eldhúsi. Kvartsteinn er á eyju og eldhúsborði og einnig á milli efri og neðri skápa. Vinkælir er í eldhúseyju og LED lýsing undir innréttingum. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Upphengt salerni og vönduð innrétting á baðherbergi sem er með stein á borði. Sérsniðin gólfsíð gluggatjöld eru í stofu. Vandaðar flísar eru á gólfum í íbúðinni.


Bílastæði er í bílageymslu og sér geymsla er einnig í kjallara.


Allar nánari  upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is

Fasteignin Skógarvegur 6

109.2 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2021
Fermetraverð : 928.571 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 98.050.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

þrö
Þröstur Þórhallsson
Eigandi og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Þröstur hefur starfað við sölu fasteigna frá árinu 1996.Hann fékk löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali vorið 2000. Þröstur býr í Fossvoginum og er Víkingur en hann spilaði bæði fótbolta og handbolta með Víking á yngri árum, er giftur og á þrjú börn. Áhugamál eru íþróttir og útivera. Golf og skák eru í miklu uppáhaldi og þess má geta að Þröstur er stórmeistari í skák, fyrrverandi Íslandsmeistari og þrautreyndur landsliðsmaður.

101.400.000 Kr.
Hafðu samband