Skipholt 11-13 105

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Til sölu glæsileg og fallega hönnuð nýleg 2ja herbergja endaíbúð í lyftuhúsi við Skipholt 11-13. Íbúðin er á 3. hæð merkt 301 og er glæsilega innréttuð með vönduðum frágangi. Stærð íbúðar með geymslu er 81,7 fm auk þess eru 9,2 fm suðursvalir út frá stofu með góðu útsýni.

Bílastæði á baklóð og miðbærinn í göngufæri.



Íbúðin skiptist í forstofu með fataskáp. Inn af forstofu er gangur, mikið skápum og innbyggðu vinnuborði í innréttingu. Stofa og eldhús eru í einu rými sem snúa í suður og úr því rými er gengið út á góðar suðursvalir sem eru 9,2 fm að stærð. Glæsilegt eldhús með miklu skápaplássi, innfelldri lýsingu undir skápum og öll raftæki fylgja með (helluborð, vifta,, ofn, tvískiptur ísskápur, uppþvottavél). Baðherbergi er vandað og flísalagt að mestu, góð innrétting og upphengt salerni. Sturtuklefi með glervegg og innbyggðum tækjum. Handklæðaofn og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara eru á baðherberginu og einnig er þar opnanlegur gluggi.  Hjónaherbergi með fataskápum á einum vegg. Á öllum gólfum nema á baðherbergi og forstofu er harðparket en fliísar á forstofu og baðherbergi.   Á jarðhæð er sér 9,1 fm  geymsla sem fylgir íbúðinni. Stór sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og snyrting á jarðhæð.  

Húsið var endurbyggt frá grunni og stækkað árið 2015 og er þessi hluti hússins nýr síðan þá.  


Upplýsingablað eiganda um ástand eignarninnar og húsfélagsyfirlýskngu er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.


Hér er um að ræða fallega og vandaða íbúð á besta stað í Reykjavík. Stutt er í verslun Bónus á jarðhæð hússins og miðbærinn í göngufæri. 


Allar nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Fasteignin Skipholt 11-13

81.7 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1968
Fermetraverð : 855.569 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 67.050.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

sv
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali

Svan Gunnar Guðlaugsson hefur um 30 ára reynslu úr bankageiranum og starfaði þar frá 1981 bæði hjá Íslandsbanka og Byr síðast sem útibússtjóri. Svan hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum starf sitt á fasteignamarkaðnum og þekkir vel til smærri sem stærri mála húsnæðismarkaðsins hvort heldur er í atvinnu- eða íbúðarhúsnæði. Svan er mikill golfari og áhugamaður um íþróttir enda mikill keppnismaður. Svan á 4 dætur.

69.900.000 Kr.
Hafðu samband