Skildinganes 45 102

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Fallegt og vandað einbýlishús í friðsælli götu í náttúruparadísinni Skerjafirði, 102 Reykjavík. Í húsinu er 3ja herbergja aukaíbúð með sérinngangi, sem er innangengt í frá aðal íbúð hússins. Hentar þannig bæði til útleigu og sem hluti af aðal íbúð. Húsið er teiknað af arkitektastofunni ARKO 1973. Húsið er skráð 220 fermetrar með bílskúr. Til viðbótar er 30 fermetra innréttað en óskráð rými sem er hluti af aukaíbúðinni. Heildareignin er því 250 fermetrar. Lóðin er 647 fermetra eignarlóð. Húsið og lóðin hefur fengið töluverða endurnýjun og er viðhald gott. Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur, lögg. fast. vidar@miklaborg.is s.6941401


Jarðhæð: Gengið er inn í anddyri á jarðhæð. Á vinstri hönd er gestasnyrting sem var endurnýjuð 2019. Úr anddyri er bæði gengið niður íbúð í kjallara og inn í stofurými og eldhús á jarðhæð. Anddyri var endurnýjað 2021 með nýjum gólfflísum og anddyrisskáp. Stofu og eldhúsrýmið er opið og bjart. Eldhúsinnrétting og borðplötur frá 2019. Borðplötur þarfnast endurnýjunar.    

Svefnherbergishæð: Gengið er upp á svefnherbergishæð úr stofurými. Þar eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Hjónaherbergi er rúmgott, með svölum og tröppum niður í lokaðan hellulagðan garð. Baðherbergi var endurnýjað 2023.

Nýlegt harðparket er á jarðhæð og svefnherbergisgangi.

Þriggja herbergja íbúð í kjallara: íbúðin var öll endurnýjuð 2021. Sérinngangur og  2,5 metra lofthæð. Eldhús, tvö svefnherbergi, stofa og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél.

Bílskúr: Góður bílskúr með heitu og köldu vatni. Gólf úr epoxífloti.

Lóð: Lóðin er að mestu hellulögð en grasflöt í bakgarði. Lokaður, skjólgóður hellulagður garður. Vinna við endurnýjun skjólveggs er í vinnslu. Hiti er í stéttum við framanvert hús.    

Endurbætur:

2021: Kjallari endurnýjaður með nýju baðherbergi og gólfefnum. Kaldavatnslagnir voru sandblásnar og akrilhúðaðar. Sísalteppi voru lögð á tröppur milli hæða. Felligardínur og myrkvunargardínur frá Skermi fyrir aðalhæð og efri hæð. Nýjar gólfflísar lagðar á anddyri og nýr anddyrisskápur frá HTH innréttingum. Skipt um gler í öllum stofugluggum á aðalhæð og 3 nýjar svalahurðir út í garð.

2022: Múrviðgerðir og málun á húsi. Útveggur baðherbergis í kjallara tjargaður, skipt um jarðveg og sett drenmöl. Skipt um jarðveg og nýjar grasþökur lagðar í bakgarði. Skipt um jarðveg og hellur lagðar í vestanverðum garði.

2023: Aðalbaðhergi endurnýjað og lagður gólfhiti. Vinna við endurnýjun skjólveggs hafin og stendur enn yfir.

Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur, lögg. fast. vidar@miklaborg.is s.6941401


Fasteignin Skildinganes 45

250.0 9 Herbergi 3 Stofur 6 Svefnherbergi 3 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1975
Fermetraverð : 0 Kr/m²
Byggingargerð : Einbýlishús
Fasteignamat : 169.650.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

viddi
Viðar Böðvarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Viðar stofnaði fasteignasöluna Fold árið 1994 og hefur starfað við fasteignasölu í yfir fjóra áratugi. Viðar er kvæntur og á eina uppkomna dóttur og tvö barnabörn. Hann hefur búið á Seltjarnarnesi frá 1980. Áhugamál Viðars eru allt sem viðkemur tónlist, ferðalög, lestur góðra bóka og allt sem viðkemur lífi og listum.

0 Kr.
Hafðu samband