Skeiðarvogur 47 104

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Endaraðhús í Skeiðarvogi ásamt bílskúr. Raðhúsið er á tveimur hæðum, alls 160,1 fm og bílskúrinn er skráður 27 fm að stærð eða samtals 187 fm heildareignin.

Nánari lýsing

Anddyri: Flísalagt og með fatahengi. Gestasnyring: Til hliðar við anddyri, upprunalegt og með opnanlegu fagi. Hol: Opið inn að stofu, eldhúsi og tröppum sem leiða upp að efri hæð. Stofa: Nær í gegn frá suður til norðurs. Fiskibeina mynstrað eikarparket á gólfum. Útgengt í bakgarð. Eldhús: Eldri innrétting með uppþvottavél og ísskáp sem fylgja með, korkflísar á gólfi. Útgengt í bakgarð. Þvottahús: Til hliðar við anddyri. Flísalagt. Hitagrind og aðgangur kjallara undir í gegn um hlera á gólfi.

Efri hæð

Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi en voru áður fjögur talsins þar sem tvö þeirra hafa verið sameinuð í eitt. Frá herberginu sem var sameinað er útgengt á svalir. Kompa: Innarlega staðsett við herbergjagang. Baðherbergi: Upprunalegar innréttingar að mestu. Flísalagt. Geymsla: Til hliðar við baðherbergi en t.d. mætti stækka baðherbergið með því að opna á milli. Bílskúr: Ný innkeyrslulhurð. Leki er inn í bílskúr frá austurgafl raðhússins og hefur verið ákveðið að farið verði í viðgerð en tímasetning né kostnaður liggur ekki fyrir.

Að sögn seljanda var frárennsli og dren endurnýjað 2019 og húsið múrviðgert og málað 2023 og þak endurnýjað á s.l. 3-4 árum.

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Fasteignin Skeiðarvogur 47

187.1 5 Herbergi 1 Stofur 4 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1960
Fermetraverð : 783.004 Kr/m²
Byggingargerð : Raðhús
Fasteignamat : 126.100.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

jr1
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteignasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
146.500.000 Kr.
Hafðu samband