Síðumúli 39 108

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg og Móeiður Svala lögg. fasteignasali kynna: Fallega tveggja til þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð í Síðumúla 39 með stæði í bílageymslu.

Íbúðin nýtist í dag sem tveggja herbergja en auðvelt er að bæta öðru svefnherbergi við. Eignin er mjög rúmgóð með svölum sem snúa í norðaustur og er í heild sinni 81.3m2 að stærð og þar af 4,3m2 geymsla í sameign, með stæði í bílageymslu. Stórar og góðar þaksvalir eru í sameign fyrir íbúðareigendur.

NÁNARI LÝSING: Íbúð merkt 303 2ja -3ja herbergja samtals 81,3 fm ásamt stæði í bílageymslu með svölum sem snúa í norðaustur.
Komið er inn í anddyri er með parket á gólfum og fataskáp. Eldhús er með parket á gólfi, uppþvottavél, efri og neðri skápar. Aðgengi út á svalir til norðausturs.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og fataskáp. Baðherbergi er snyrtilegt, efri og neðri skápar, flísalagt með upphengdu salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er inni á baðherbergi. Sjónvarpshol er með parket á gólfi, inn af því er hægt að útbúa auka herbergi. Innréttingar eru sérsmíðaðar frá Formus/Vöke. Eldhústæki eru af gerðinni AEG. Háfur er að gerðinni Elica. Geymsla í sameign, 4,3m2 og stæði í bílageymslu.

Sorpgeymsla og sérgeymslur eru á jarðhæð hússins ásamt hjóla og vagnageymslu. Í bílakjallara hússins eru 13 bílastæði og fylgir stæði með þessari íbúð.

Aðalhönnuður hússins er Jakob Líndal á Alark arkitektar. Allar innréttingar eru hannaðar af Hallgrími Friðgeirs innanhúsarkitekt.

Allar nánari upplýsingar gefur Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899 8278 eða moa@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is

Fasteignin Síðumúli 39

81.3 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2019
Fermetraverð : 822.878 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 67.450.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi
66.900.000 Kr.
Hafðu samband