Rjúpnavegur 4 806
BiskupstungurLýsing
Miklaborg kynnir: Fallegt sumarhús á góðum stað í Reykjaskógi. Húsið er með hitaveitu og er með svefnlofti og óskráðu ca. 15 fm. geymsluhúsnæði. Þannig að samtals nýtanlegir fermetrar eru nálægt 80.
Nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 694-1401
Nánari lýsing. Komið er í anddyri með fatahengi.
Tvö svefnherbergi.
Opið eldhús með ágætri innréttingu, eldavél með keramikhelluborði og bakaraofni .Siemens uppþvottavél og Elecctroluxísskáp með frysti.
Baðherbergi með dúk á gólfi, þar er sturtuklefi. Dyr frá baðherbergi út á pall þar sem er heitur pottur.
Óskráð rými er yfir helming bústaðar, nýtist t.d. sem gott svefnloft. Gluggi er á þessu rými.
Gólfefni bústaðar er harðparket.
Rumgóður pallur er við húsið með heitum potti með nuddstútum.
Bústaðurinn er skráður á byggingarstigi B2, fokheldur. Kaupandi þarf að setja handrið á pall og við stiga upp í ris til að fá hann skráðan sem fullbúinn.
Hitaveita er í bústað og er innheimt skv. mælum.
Lóðin er leigulóð frá Efri Reykjum og er hitaveitan einnig þaðan. Lagt er fyrir ofnum í svefnherbergjum , en þeir ekki til staðar. Ofnar í húsinu eru nýlegir nema handklæðaofn.
Ca. 15 fm. geymsluhús á lóð fylgir.
Á lóðinni er gangstigur og ljós meðfram honum.
Við húsið er geymsla með tengi fyrir þvottavél. Ótengd rafmagnslögn fyrir hleðslustöð til staðar við hlið.
Nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson, vidar@miklaborg.is, s.6