Opið hús: 25.06.2026, 17:45 - 25.06.2026, 18:15

Reyrengi 7 112

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Fallega og vel skipulagða endaíbúð á frábærum stað í Grafarvogi. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi og geymslu. Íbúðin er á annari hæð og henni fylgir stæði í bílageymslu. Þetta er einstaklega vel staðsett eign á mjög barnvænum stað í Grafarvogi þar sem barnaskóli, framhaldsskóli og leikskóli eru í göngufæri. íbúðin er björt og með miklu útsýni, m.a. að Esju.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.


Forstofa er með fatahengi.

Stofa er með viðarparketi á gólfi, gengt frá henni á svalir.

Herbergi er við stofu sem getur nýst sem svefnherbergi eða vinnuherbergi. Eikarparket á gólfi.

Eldhús er með fallegri ljósri innréttingu, ljósar flísar eru á gólfi. Keramikhelluborð og bakaraofn í vinnuhæð, ágætur borðkrókur.

Tvö parketlögð svefnherbergi,

Baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi og vegg við bað.

Geymsla er innan íbúðar.

Á jarðhæð er sameiginleg hjólageymsla.

Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.

Vel skipulögð íbúð á rólegum stað í Grafarvogi.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

Fasteignin Reyrengi 7

88.3 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1993
Fermetraverð : 768.969 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 65.400.000

Nánari upplýsingar veitir:

viddi
Viðar Böðvarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Viðar stofnaði fasteignasöluna Fold árið 1994 og hefur starfað við fasteignasölu í yfir fjóra áratugi. Viðar er kvæntur og á eina uppkomna dóttur og tvö barnabörn. Hann hefur búið á Seltjarnarnesi frá 1980. Áhugamál Viðars eru allt sem viðkemur tónlist, ferðalög, lestur góðra bóka og allt sem viðkemur lífi og listum.

67.900.000 Kr.
Hafðu samband