Reykjavíkurvegur 27 220
HafnarfjörðurLýsing
Vel skipulegt 154,7fm einbýlishús á þremur hæðum með fallegum suð/vestur garði með heitum potti. Eignin skiptist í : forstofu, baðherbergi, þrjár stofur, eldhús, 5 svefnherbergi, þvottahús, geymslu og stórt fataherbergri/geymslu. Fallegt og vel við haldið einbýli i gamla bænum.
Nánari upplýsingar veita Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali s: 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Kjartan Ísak Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í síma 663 4392 eða kjartan@miklaborg.is
NÁNARI LÝSING :
MIÐHÆÐ : Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Nýlega standsett baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni, innréttingu við vask, flísar á gólfi og veggjum. Þrjár samliggjandi stofur, parket á gólfi, útgengt út á verönd frá einni stofana. Eldhús með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi. Eldhús er opið við borðstofu að hluta. Fallegur afgirtur garður með heitum potti og fjölbreyttum gróðri. RISHÆÐ : Komið er upp á gang með parketi gólfi. Fjögur svefnherbergi með parketi á gólfi. Gott hjónaherbergi með parketi á gólfi, gluggar á tvo vegu. KJALLARI : Frá eldhúsi er stigi niður í kjallarann. Komið er niður í gott þvotthús með lökkuðu gólfi, útgengt út í garð. Stór geymsla sem er í dag er nýtt sem fataherbergi, lakkað gólfi. Önnur góð geymsla með lökkuðu gólfi. Hljóðeinangrandi gler er í gluggum sem snúa að götu. Að sögn eiganda er var baðherbergið allt tekið í gegn 2017.Skipt var um heitaveitulögð út í götu 2009. Frárennslislagnir voru endurnýjaðar 2011 og lagt í pvc.
Fallegt og vel skipulagt hús í göngufæri við Hellisgerði og miðbæinn.