Reykjastræti 7 (313) 101

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Falleg 2-3ja herbergja 130 m2 íbúð á 3ju hæð ásamt bílastæði í lokuðum aðgangsstýrðum bílakjallara fyrir íbúa hússins þar sem búið er að setja upp grunntengingu fyrir hleðslustöð. Austurhöfn er glæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun og staðsett á einstökum reit við höfnina í Reykjavík. Íbúðarbygging þar sem ekkert er til sparað hvort sem litið er til innréttingja, tækja, þjónustu sem og allan frágang að innan sem utan. Skjólgóður garður er rammaður inn af byggingunni. Gæði eru sett á nýjan stall með íbúðum við Austurhöfn.


Eignin er laus við undirritun kaupsamnings.

Íbúðin skiptist í stóra forstofu, alrými þar sem eru stofur og eldhús, stórt svefnherbergi með fataherbergi og stórt baðherbergi. Tvennar svalir fylgja íbúinni. Gegnheilt parket er á gólfum en á baðhebergi eru flísar. Fyrir framan inngang í íbúðina er lokað rými sem nýtist sem auka forstofa.

Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska framleiðandanum Gili Creations bæði í eldhúsi, fataskápum og baðherbergjum ásamt öðru föstum innréttingum.  Kvarts  borðplata er við eldhúsvask en borð yfir eldhúseyju er klætt  marmara flísum.  Íbúðin er með fullbúnu eldhúsi með tækjum af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Íbúðin er á 3ju hæð og nýtur útsýnis yfir Reykjastræti og horfir yfir fallegan inngarð Austurhafnar. Íbúðinni fylgir bílastæði í lokuðum aðgangsstýrðum bílakjallara fyrir íbúa hússins þar sem búið er að setja upp grunntengingu fyrir hleðslustöð. Stór geymsla fylgir einnig íbúðinni í kjallara en hún er skráð 16,7 m2.


Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.


Nánari upplýsingar veita

Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is

Þórhallur Axel Þrastarson astoðarmaður fasteignasala í síma 696-5240 eða thor@miklaborg.is


Fasteignin Reykjastræti 7 (313)

130.0 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2019
Fermetraverð : 1.114.615 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 149.650.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

þrö
Þröstur Þórhallsson
Eigandi og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Þröstur hefur starfað við sölu fasteigna frá árinu 1996.Hann fékk löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali vorið 2000. Þröstur býr í Fossvoginum og er Víkingur en hann spilaði bæði fótbolta og handbolta með Víking á yngri árum, er giftur og á þrjú börn. Áhugamál eru íþróttir og útivera. Golf og skák eru í miklu uppáhaldi og þess má geta að Þröstur er stórmeistari í skák, fyrrverandi Íslandsmeistari og þrautreyndur landsliðsmaður.

144.900.000 Kr.
Hafðu samband