Reykjastræti 6 101
ReykjavíkLýsing
Miklaborg kynnir: TIL LEIGU - Glæsilegt verslunar og þjónusturými á jarhæð í nýju húsnæði Landsbankans við Reykjastræti. Afhent í núverandi ástandi. Fullbúið að utan og rúmlega fokhelt að innan.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Landsbankinn hefur til leigu rými sem hentar vel fyrir fjölbreytta verslun og þjónustu í nýju húsi við Austurbakka, sem mun hýsa starfsemi bankans. Hús Landsbankans er í miðju borgarhverfi þar sem stórir vinnustaðir, íbúabyggð, verslun, þjónusta, menning og listir skapa fjölbreytt mannlíf og eru mikið aðdráttarafl allt árið um kring.
Hönnun hússins er einstök. Staðsetningin gerir húsið að einu auðþekktasta kennileiti borgarinnar og eykur aðdráttarafl miðborgarinnar. Hús Landsbankans tengist vel umhverfi sínu með góðum almenningsrýmum, gönguleiðum og annarri byggð. Þúsundir starfa í miðborginni og nýta þjónustu þar auk þess sem svæðið nýtur nálægðar við stjórnsýslusvæðið við Reykjastræti og Arnarhól.
Húsið er hannað með mannleg og nútímaleg gildi að leiðarljósi. Áhersla er lögð á skapandi vinnuumhverfi og er húsið vottað samkvæmt alþjóða BREEAM-staðlinum.
Afhent í núverandi ástandi. Fullbúið að utan og rúmlega fokhelt að innan. 4-5 inngangar eru í rýmið og því hægt að skipta því niður í minni einingar.
Leigutími húsnæðisins er að lágmarki 10 ár og að hámarki 25 ár.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is