Orkureitur A 411 108

Reykjavík

Lýsing

Íbúð 411

Vel skipulögð og björt 83,7 fm, þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð. Sjá sölusíðu -> Orkureiturinn

Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM vistvottunarkerfinu og hefur það fengið einkunina „Excellent.

Nánari upplýsingar veitir Katla Hanna Steed löggildur fasteignasali í síma 822 1661 eða katla@miklaborg.is

Eignin skiptist í forstofu með góðu skápaplássi. Inn af forstofu er baðherbergi er með sturtu og fallegri innréttingu. Þvottaaðstaða er inni á  baðherbergi. Við enda forstofu er rúmgott svefnherbergi. Eldhús er með fallegri innréttingu og er opið inn í rúmgott alrými, þar sem einnig eru stofa og borðstofa. Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum er inn af alrými. Útgengt er á svalir til norðvesturs út af alrými.

Íbúðin afhendist með vönduðum innréttingum frá Nobila (sölu- og þjónustuaðili: GKS) innrétttingarþema sem ákveðin hafa verið af innanhússarkitekt verkefnisins, Rut Káradóttir er R2 - Sandur.

Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Allt loft sem fer í gegnum kerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella.

Nánari upplýsingar veitir Katla Hanna Steed löggildur fasteignasali í síma 822 1661 eða katla@miklaborg.is og Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is

Fasteignin Orkureitur A 411

83.7 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2023
Fermetraverð : 1,022,892 Kr/m²
Byggingargerð : Fjölbýlishús
Fasteignamat :
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

Katla
Katla Hanna Steed
Löggiltur fasteigna- & skipasali

Katla hefur mikla reynslu og þekkingu á sviði framleiðslu mannvirkja og nýbygginga þar sem hún hefur starfað við það frá árinu 2006. Reynslan nýtist henni vel í starfi fasteignasala.

Katla er uppalin í Breiðholtinu en býr í Úlfarsárdal  ásamt eiginmanni sínum og þremur drengjum.

84.900.000 Kr.
Hafðu samband