Orkureitur A 310 108

Reykjavík

Lýsing

Íbúð 310

Vel skipulögð 83,3 fm, þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð. Sjá sölusíðu -> Orkureiturinn

Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM vistvottunarkerfinu og hefur það fengið einkunina Excellent.

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn Valdimarsson löggiltur fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Eignin skiptist í forstofu með góðu skápaplássi. Inn af forstofu er baðherbergi er með sturtu og fallegri innréttingu. Þvottaaðstaða er inni á  baðherbergi. Við enda forstofu er rúmgott svefnherbergi. Eldhús er með fallegri innréttingu og er opið inn í rúmgott alrými, þar sem einnig eru stofa og borðstofa. Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum er inn af alrými. Útgengt er á suðaustur svalir út af alrými.

Íbúðin afhendist með vönduðum innréttingum frá Nobila (sölu- og þjónustuaðili: GKS) innrétttingarþema sem ákveðin hafa verið af innanhússarkitekt verkefnisins, Rut Káradóttir er R2 - Sandur.

Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Allt loft sem fer í gegnumkerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella.

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn Valdimarsson löggiltur fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is og Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is

Fasteignin Orkureitur A 310

83.7 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2023
Fermetraverð : 998,795 Kr/m²
Byggingargerð : Fjölbýlishús
Fasteignamat :

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteignasali

Jón Rafn hefur starfað við fasteignasölu í tvo áratugi. Hann hefur víðtæka reynslu í sölu sumarhúsa jafnt sem sölu annara fasteigna. Jón Rafn er uppalinn í Fossvoginum, en bjó lengi vel í vesturbæ Reykjavíkur og Garðabæ en í dag er hann ásamt eiginkonu sinni búsettur í Mosfellsbæ. Jón á tvo syni með eiginkonu sinni sem fært hafa þeim alls fimm barnabörn.

695-5520
82.900.000 Kr.
Hafðu samband