Öndverðarnes S 20 805

Grímsnes

Lýsing

Miklaborg og Kristín Avon kynna glæsilegt 221,2 fermetra steypt hús við Stangarbraut 20 í Öndveðarnesi.

Húsið skiptist í aðalhús, með bílskúr og gestaíbúð. Húsið er með steinveggjum, steypt í einangrunarmót, góð einangrun, með þreföldu gleri, loftskipti kerfi og alhliða lausn í stýringu fyrir rafkerfið þar sem hægt er að stjórna hita og lýsingu.

Húsið verður klætt með vandaðri utanhúsklæðningu og millieiningin klædd með sedrusvið.

Aðalhúsið er skráð 158,1 fm, bílskúrinn 33,8 fm og gestaíbúð 29,3 fm samtals 221.2 fm.

Eignin skiptist í 2 svefnherbergi og hjónasvítu sem er með fataherbergi og sér baðherbergi með sturtu og innbyggðum Grohe blöndunartækjum í sturtu, innbyggðir Tece klósett kassar, með Tece snertifríum sturtuhnapp, og GSI salerni. Baðherbergin þrjú eru öll flísalögð, og einnig gólf í gestaíbúð, gólf í þvottahúsi og anddyri í íbúð. Loftadúkur er í öllum loftum nema bílskúr. Lóð grófjöfnuð. Góð verönd við húsið.

Vinsæll golfvöllur er á svæðinu sem og einkasundlaug.

Staðsetning: Keyrt er frá hliði að golfskála. Þaðan er beygt til vinstri inn Kambsbraut. Farið upp hæð og framhjá afleggjara þangað til að kemur að götu merktri Stangarbraut sem er til vinstri, og þar er annar botnlangi sem er til hægri. Lóðin stendur hátt og er á horni botnlanga og Stangarbrautar.

Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir.
Leigulóð, c.a. 155 þús gjald á ári, og innifalin er mikil þjónusta. Sundlaug. Rafmagnshlið. ofl.

Aðeins 50 min keyrsla frá Reykjavík. Keyrt er frá hliði að golfskála. Þaðan er beygt til hægri inn Kambsbraut. Farið upphæð og framhjá afleggjara þangað til að kemur að götu merktri Stangarbraut sem er til vinstri, og þar er annar botnlangi sem er til hægri. Lóðin stendur hátt og er á horni botnlanga og Stangarbrautar.

Eign í smíðum.

Aðeins einkaskoðanir í boði.

Allar nánari upplýsingar veita:

Kristín Avon aðst. f.sala s. 772-2959 eða kristinavon@miklaborg.is

Jón Rafn Valdimarsson löggiltur fasteignasali s. 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Fasteignin Öndverðarnes S 20

221.2 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 3 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2023
Fermetraverð : 881.555 Kr/m²
Byggingargerð : Sumarbústaður
Fasteignamat : 48.350.000
Þvottahús : Sér

Nánari upplýsingar veitir:

óæuyjhg
Kristín Avon Gunnarsdóttir
Markaðsstjóri

Kristín Avon hóf störf hjá okkur 2023. Hún lauk námi til löggildingar fasteigna- og skipasala vorið 2024. Hún er fædd og uppalin í Hafnarfirði en býr nú í Garðabæ og á tvær dætur. Áhugamál Kristínar er útivist, ferðalög og myndlist og heldur hún einnig úti vefsíðunni artbyavon.is þar sem hennar listaverk eru til sýnis. Hún hefur mikla reynslu af þjónustu og sölustarfi. Kristín sér um markaðsmál Mikluborgar.

195.000.000 Kr.
Hafðu samband