Opið hús: 08.02.2026, 15:30 - 08.02.2026, 16:00

Öldugrandi 3 107

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg og Böddi kynna: Falleg þriggja herbergja íbúð á 1. hæð með stæði í bílakjallara við Öldugranda 3. Fallegt útsýni frá íbúðinni. Íbúð á fyrstu hæð (102), íbúð og stæði skráð samtals 105,1 fermetrar og 12 fm geymsla sem ekki telst til skráðra fermetra. Vestursvalir frá stofu, sjávarútsýni úr endurnýjuðu eldhúsi til austurs. Vel staðsett eign með þjónustu á Eiðistorgi við hendina, gönguleiðir út á Gróttu, stutt á Gróttuvöllinn og KR-völlinn, sundlaugina á Nesinu og Vesturbæjarlaugina, skóla og leikskóla í næsta nágrenni ásamt heilsugæslu. Þetta er frábær staðsetning fyrir barnafólk.


Nánari upplýsingar: Böddi Lgf. Sími 8216300 eða boddi@miklaborg.is



Nánari lýsing:

Gengið er inn í sameiginlegan stigagang og upp hálfa hæð út á svalagang þar sem gengið er í íbúðina.

Forstofa:Flýsalögð með fataskáp.

Innan við forstofu er komið í hol þar sem eldhús er til vinstri, stofa og tvö svefnherbergi og baðherbergi hægra meginn
Stofan: er björt með stórum gluggum til vesturs, og svalir til vesturs frá stofu.

Eldhúsið: er með flottri svartri háglans innréttingu, fínu vinnuplássi og útsýni til sjávar.

Hjónaherbergi: rúmgott með parketi og fataskáp.

barnaherbergi parketi lagt með glugga út að sjó.

Baðherbergið: hefur verið endurnýjað með upphengdu klósetti og flísalagt í hólf og gólf og plássi fyrir þvottavél.

Forstofa, eldhús og hol eru flísalögð með flottum svörtum flísum. Tengi fyrir þvottavél er inni á baðherbergi en aðgangur er að vel búnu sameiginlegu þvottahúsi í kjallara. Innangengt er úr stigagangi hússins niður í bílakjallara. Rúmgóð geymsla er í kjallara ásamt sameiginlegri hjólageymslu.

Stæði merkt í bílakjallara.

Vel staðsett rúmgóð og björt þriggja herbergja íbúð

Nánari upplýsingar: Böddi Lgf. Sími 8216300 eða boddi@miklaborg.is

Fasteignin Öldugrandi 3

105.1 3 Herbergi - Stofur - Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1983
Fermetraverð : 712.655 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 74.700.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

Böddi
Böðvar Þ. Eggertsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Böddi starfaði áður sem hárgreiðslumaður í 34 ár og hefur mjög góða reynslu í mannlegum samskiptum. Hann hefur einnig unnið við að hanna innanhúss, hótelíbúðir, viðburðarhús og tvö einbýlishús á síðustu þremur árum og stýrði einnig að hluta uppbyggingu í gamla bænum á Blönduósi. Hann hefur átt og rekið hárgreiðslustofur bæði hér og í Svíþjóð. Böddi er giftur og á 4 dætur og er búsettur í Hafnarfirði. Áhugamál eru líkamsrækt og allt sem viðkemur mótorsporti og hraða.

74.900.000 Kr.
Hafðu samband