Öldubyggð 24 805
GrímsnesLýsing
Miklaborg kynnir: Fallegt 52,4 fm sumarhús í Grímsnesi á fallegri eignarlóð með trjágróðri. Stórir sólpallar með heitum potti og eldri gróðurhús á lóðinni. Gott útsýni er frá húsinu. Eignin er laus við kaupsamning.
Staðsetning hér
Aðkoma er góð að bústaðnum með rúmgóðu bílaplani sem tekur nokkra bíla. Bústaðurinn skiptist upp í hol með fatahengi. Tvö svefnherbergi bæði með fataskápum, annað herbergið er með kojum með svefnplássi fyrir 2-3. Baðherbergi er með sturtuklefa og ágætri innréttingu. Alrými með stofu og góðu eldhúsi. Útgengi er frá stofu út á sólpall. Þvottahúsaðstaða er í geymslu við inngang en einnig eru tvær geymslur sem að sögn eiganda eru óskráðar en tengdar við húsið. Í húsinu er 190 lítra hitakútur fyrir neysluvatn en húsið er hitað upp með loftkyndingu. Sólpallar eru báðum megin við hús og til suður, gengið er á neðri sólpall um stiga en þar er heitum pottur upphitaður með rafmagni. Lóðin er skógi vaxin og því skjólgóð. Grasblettur er vestan megin og við enda lóðarinnar eru tvö eldri gróðurhús með plast yfirbyggingu. Svæðisgjald er 30 þúsund á ári. Flest allur búnaður hússins fylgir með í kaupunum.
Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is