Óðinsgata 7 101

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg / Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali kynna fallegt verslunar og þjónustuhúsnæði á efirsóttum stað í Þingholtunum. Húsnæðið getur nýst undir margvíslega starfsemi eins og t.d. verslun, gallerý, veitingastarfsemi ofl. Hið vinsæla Óðinstorg er til hliðar við húsið.

Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.



Nánari lýsing Komið er inn á flísalagt anddyri. Húsnæðið er að mestu opið rými en til staðar eru líka skrifstofur og fundarherbergi. Eldhús og baðherbergi eru í bakhluta húsnæðisins. Húsnæðð er bjart og er bæði með gluggum í suð-vestur og norður. Parket er á gólfum. Húsnæðið getur nýst undir margvíslega starfsemi eins og t.d. verslun, gallerý, veitingastarfsemi ofl. Komið er að viðhaldi á húsinu að utan og fyrir liggja bæði ástandsskýrsla og kostnaðaráætlun. Einnig liggur fyrir ástandsskoðunarskýrsla frá verkfræðistofu vegna ástands að innan en endurnýja þarf glugga ofl. vegna rakaskemmda.


Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning. Eftirsótt staðsetning og hið vinsæla Óðinstorg er til hliðar við húsið.



Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is


Fasteignin Óðinsgata 7

201.7 4 Herbergi - Stofur - Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1964
Fermetraverð : 639.564 Kr/m²
Byggingargerð : Skrifstofa
Fasteignamat : 106.100.000

Nánari upplýsingar veitir:

þrö
Þröstur Þórhallsson
Eigandi og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Þröstur hefur starfað við sölu fasteigna frá árinu 1996.Hann fékk löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali vorið 2000. Þröstur býr í Fossvoginum og er Víkingur en hann spilaði bæði fótbolta og handbolta með Víking á yngri árum, er giftur og á þrjú börn. Áhugamál eru íþróttir og útivera. Golf og skák eru í miklu uppáhaldi og þess má geta að Þröstur er stórmeistari í skák, fyrrverandi Íslandsmeistari og þrautreyndur landsliðsmaður.

129.000.000 Kr.
Hafðu samband