Opið hús: 13.08.2026, 17:00 - 13.08.2026, 17:30

Núpalind 8 201

Kópavogur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja 120 m2 útsýnisíbúð á 7. hæð (efstu) í viðhaldslitlu fjölbýli í Núpalind í Kópavogi. Íbúðin er skráð 120 m2 en auk þess fylgir íbúðinni stæði í bílageymslu um 14 m2. Alls er eignin því 134 m2.  Á hæðinni eru aðeins tvær íbúðir. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, búr, þvottahús, baðherbergi, stofu, borðstofu, sjónvarpsherbergi, geymslu, stórar yfirbyggðar svalir (16 m2) og stæði í bílastæðahúsi.

 

Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Forstofa er rúmgóð með góðum skápum. Flísar á gólfi.

Svefnherbergin eru tvö, bæði björt og rúmgóð með góðum skápum. Parketi á gólfi.

Stofa og borðstofa eru í björtu rúmgóðu alrými með stórum gluggum og miklu útsýni til suð-vesturs, útgengi út á stórar yfirbyggðar svalir sem snúa í suð-vestur. Parket á gólfi.

Eldhús er snyrtilegt og rúmgott með góðri innréttingu og góðu vinnuplássi, ofni í vinnuhæð, helluborði, háf og plássi fyrir ísskáp og uppþvottavél. Parket á gólfi.

Búr er inn af eldhúsinu. Parket á gólfi.

Þvottahús er innan íbúðar með skáp og skolvask og plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, sturtuklefa, salerni og innréttingum.

Sjónvarpsherbergi er mjög rúmgott en gluggalaust og undir súð að hluta. Parket á gólfi.

Geymslan er innan íbúðar og er mjög rúmgóð en undir súð að hluta. Málað gólf.

 

Allar innréttingar og skápar í íbúðinni eru upprunaleg en í góðu ástandi. 

Núpalind 8 er staðsteypt steinhús byggt árið 1999 með einum stigagangi með lyftu, einangrað að utan og klætt með plötuklæðningu. Gluggar eru álklæddir timburgluggar með þreföldu einangrunargleri. Örstutt er í Lindaskóla, leikskóla, verslanir og göngu- og hjólaleiðir. Stigagangur og önnur sameign er sérlega snyrtileg. Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Eignin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning.

Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

 

Fasteignin Núpalind 8

134.0 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1999
Fermetraverð : 723.134 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 95.650.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

sss
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
96.900.000 Kr.
Hafðu samband