Hlutdeildarlán: Brúin að þinni fyrstu eign

16. febrúar 2026
Hlutdeildarlán

Hlutdeildarlán: Brúin að þinni fyrstu fasteign

Hlutdeildarlán er sérstakt lán frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) sem ætlað er að hjálpa fólki að kaupa sína fyrstu íbúð eða þeirra sem hafa ekki átt íbúð í 5 ár. Með hlutdeildarláni getur þú fengið hluta kaupverðsins að láni án vaxta og án afborgana, þar til þú selur eignina. Markmiðið er að auðvelda fyrstu kaupendum að stíga sín fyrstu skref inn á fasteignamarkaðinn.

Hvernig virkar hlutdeildarlán?

Þegar þú kaupir íbúð með hlutdeildarláni tekurðu tvö lán:

  1. Eigið fé: Að lágmárki 5% af kaupverði
  2. Hlutdeildarlán frá HMS: Allt að 25% af kaupverði íbúðarinnar.
  3. Hefðbundið húsnæðislán frá banka eða lífeyrisjóð sem nær yfir það sem upp á vantar.

Þú greiðir ekki vexti eða afborganir af hlutdeildarláninu meðan þú átt íbúðina. Þegar þú selur eignina eða flytur, greiðir þú HMS til baka sama hlutfall af söluverðinu og lánið var upphaflega.

Dæmi um 25% hlutdeildarlán: Ef íbúðin kostar 60 milljónir kr. og þú átt 3 milljónir kr. í eigið fé (5%), lánar HMS þér 15 milljónir kr. (25%). Bankalánið þarf þá aðeins að vera 42 milljónir kr. (70%). Þegar þú selur íbúðina síðar, greiðir þú HMS aftur 25% af því söluverði sem fæst fyrir íbúðina.

Hverjir geta fengið hlutdeildarlán?

Til að fá hlutdeildarlán þarf umsækjandi að uppfylla ákveðin skilyrði sem HMS setur. Þau eru hugsuð til að tryggja að stuðningurinn nýtist þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð og hafa takmarkað fjármagn.

Til að eiga möguleika á að fá hlutdeildarlán þarf að uppfylla eftirtalin skilyrði:

  • Að vera að kaupa íbúð í fyrsta sinn eða hafa ekki átt íbúð sl. fimm ár.
  • Að hafa tekjur undir ákveðnum viðmiðunarmörkum.
  • Að eiga fyrir útborgun sem nemur 5% af kaupverði íbúðar.
  • Einstaklingum eða pörum sem eiga erfitt með að safna 15–35% eiginfjárframlagi.
  • Að kaupa íbúð sem er samþykkt af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
  • Að standast reglur Seðlabankans um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við ráðstöfunartekjur kaupenda.

Tekjumörk

Tekjumörkin fyrir Hlutdeildarlán hjá Húsnæðis‑ og mannvirkjastofnun (HMS) eru sett til að tryggja að stuðningurinn nái til þeirra sem hafa takmarkaða stöðu til eigin fjár og þurfa hjálp til að komast inn á fasteignamarkaðinn.

Tekjumörk fyrir 25% hlutdeildarláni

Þú þarft að standast greiðslumat fyrir 70% lán til 25 ára (ef lánið er óverðtryggt má lánstími vera lengri). Mánaðarleg afborgun af íbúðarláni má ekki fara yfir 45% af ráðstöfunartekjum hjá einstaklingum en 40% hjá hjónum/sambúðarfólki.

  • Einstaklingar með tekjur undir 10.000.000.- kr. síðastliðna 12 mánuði eða undir 833.333.- kr. á mánuði.
  • Sambúðarfólk sem er með undir 15.000.000 kr. í heildartekjur sl. 12 mánuði eða  undir 1.250.000.- kr. á mánuði.
  • Fyrir hvert barn/ungmenni undir 20 ára á framfæri lántakanda eða býr á heimilinu þá mega tekjur hækka um 2.254.000.- kr. á 12 mánaða tímabili  per barn/ungmenni eða um 187.833.- kr. á mánuði.

Tekjumörk fyrir 35% hlutdeildarláni

Þú þarft að standast greiðslumat fyrir 60% láni til 25 ára (ef lánið er óverðtryggt má lánstími vera lengri). Hlutfall hlutdeildarláns fer samt eftir eigin fé og greiðslugetu, til dæmis ef þú hefur greiðslugetu til að fá 70% lán færðu ekki hærra en 25% hlutdeildarlán.

  • Einstaklingar með tekjur undir 6.793.000.- kr. síðastliðna 12 mánuði eða undir 566.083.- kr. á mánuði.
  • Sambúðarfólk sem er með undir 10.620.000​​​​​​​.- kr. í heildartekjur sl. 12 mánuði eða  undir 885.000.- kr. á mánuði.
  • Fyrir hvert barn/ungmenni undir 20 ára á framfæri lántakanda eða býr á heimilinu þá mega tekjur hækka um 2.254.000.- kr. á 12 mánaða tímabili  per barn/ungmenni eða um 187.833.- kr. á mánuði.

Hvernig reiknaru út hvort þú fallir undir hlutdeildarlán HMS?

1. Safnaðu helstu upplýsingum

  • Árstekjur síðustu 12 mánuði (eða samtekjur ef í sambúð). Hægt að sjá inn á skatturinn.is.
    • ➡️Skráir þig inn. ➡️Almenn. ➡️Staðgreiðsluskrá. ➡️Skoðar heildartekjur sl. 12 mánuði.
  • Fjöldi barna undir 20 ára.
  • Eigið fé (eignir mínus skuldir, námslán teljast ekki með).
  • Að lágmarki 5% útborgun af kaupverði.
  • Áætlað kaupverð eða kauptilboð í íbúð.
  • Greiðslubyrði má ekki fara yfir viðmið HMS.

2. Athugaðu skilyrðin

  • Tekjur og eigið fé verða að vera innan marka sem HMS setur.
  • Eignin þarf að vera innan verð- og stærðarmarka.
  • Þú þarft að standast greiðslumat hjá banka.

3. Metið hvort þú fallir undir

     ✅ Tekjur innan marka
     ✅ Eigið fé og útborgun í lagi
     ✅ Greiðslubyrði innan viðmiða
     ✅ Eignin uppfyllir skilyrði HMS
     ➡️ Þá geturðu sótt um hlutdeildarlán HÉR.

4. Prófaðu reiknivélina

      Farðu á reiknivél hlutdeildarlána og sláðu inn tekjur, eignir og kaupverð til að sjá strax hvort þú uppfyllir skilyrðin.

Við hjá Miklaborg þekkjum ferlið í kringum hlutdeildarlán út og inn. Við aðstoðum þig við að finna réttu eignina sem uppfyllir skilyrði HMS og leiðum þig í gegnum kaupferlið af öryggi alla leið heim!

Viltu vita meira? Hafðu samband við sölufólk okkar eða bókaðu ráðgjöf.

📧 miklaborg@miklaborg.is
📱569-7000