Nesflói 1 (103) 300

Akranes

Lýsing

Miklaborg kynnir: Fullbúin eign – tilbúin til afhendingar.

Byggingin er hönnuð í samræmi við stefnu Grænna iðngarða: gæði og snjallar lausnir í forgrunni. Nesflói 1 státar af lyklalausu aðgengi, símastýrðum lausnum, öryggismyndavélum og aðgangsstýringum með snjallbúnaði. Svæðið er afgirt með rafstýrðu hliði og merktum, upphituðum bílastæðum.

Helstu kostir Grænna iðngarða, Nesflóa 1:

  • Lyklalaust og snjallstýrt aðgengi
  • Vistvænt umhverfi og hleðslustöðvar fyrir rafbíla
  • Fullfrágengin og malbikuð bílastæði
  • Afgirt svæði með rafmagnshliði og öryggismyndavélum

Umhverfi og skipulag:
Eignin fellur að stefnu Akraneskaupstaðar um græna iðngarða: snyrtilegur frágangur, gróður, sorpflokkun og blágrænar ofanvatnslausnir eru lykilatriði. Eigendum ber að framfylgja stefnu sveitarfélagsins í samræmi við deiliskipulag. Þetta tryggir hreinlegt og skipulagt umhverfi fyrir alla.

Grunnur og plata: Jarðvegsskipti verða gerð að lóðamörkum. Sökkull og botnplata eru einangruð, steyptar úr járnbentri steinsteypu, með 50 cm hárri steyptum vegg sem stálvirki stendur á milli 7 eininga. Sjá teikningu.

Útveggir: Stálvirki með yleiningum og corten-klæðningu á gafli.

Þak: Fullfrágengið stálþak með niðurföllum tengdum fráveitu/blágrænum lausnum. Þakplata ber 150 mm einangrun og vatnsvarnarlag með UV-vörn.

Lóð og girðing: Malbikuð lóð, afgirt með 180 cm hárri galvan- og pólýhúðaðri girðingu. Snjallhlið (10m) með síma- og fjarstýrðum aðgangi og gönguhurð við hlið.

Milliloft: Fullbúið með parket, snyrtingu, eldhúsinnréttingu og háum þakgluggum sem hleypa inn dagsbirtu.

Annað: Seljandi greiðir lóðargjöld og heimæðagjöld fyrir vatn og rafmagn. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það leggst á. Kaupverð nær ekki yfir annað en fram kemur í skilalýsingu og á www.floi.is.

Athugið: Eignin er með virðisaukaskattskvöð sem væntanlegur kaupandi þarf að yfirtaka. Upplýsingar í söluyfirliti eru frá seljanda og opinberum gögnum.


Möguleiki er á að fá eignina leigða.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Fasteignin Nesflói 1 (103)

169.4 0 Herbergi - Stofur - Svefnherbergi - Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2024
Fermetraverð : 0 Kr/m²
Byggingargerð : Iðnaður
Fasteignamat : 41.800.000

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
0 Kr.
Hafðu samband