Nesbali 25 170

Seltjarnarnes

Lýsing

Miklaborg kynnir: Bjart og vel skipulagt 194 fm einbýlishús á einni hæð, á þessum vinsæla stað á Seltjarnarnesi, auk bílskúrs og óskráðs rýmis í kjallara með sér inngangi sem getur nýst sem unglingarými, tómstundaherbergi eða með möguleika á útleigu.

Rúmgóður tvöfaldur bílskúr með stóru bílaplani fyrir framan. Á lóðinni eru tvær útigeymslur og einnig geymsla/skúr á lóðinni sem er ca. 22 fm og er með hita og rafmagni. Samtals er eignin um 300 fm. með öllu ómældu rými að sögn seljanda.

Húsið er laust við undirritun kaupsamnings.

Allar nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg fast: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

1. hæð: Forstofa með rúmgóðum fataskáp. Flísalögð gestasnyrting inn af forstofu. Geymsla (áður tröppur niður í kjallara en hægt að opna á milli aftur). Húsbóndaherbergi/svefnherbergi. Eldhús með nýlegri innréttingu og tækjum. Stofa og borðstofa í opnu rými með kamínu og stórum gluggum. Sjónvarpsherbergi og þaðan er útgengt út á skjólgóðan og sólríkan pall með heitum potti í suður og þaðan út í garð. Á svefnherbergjagangi er rúmgott hjónaherbergi með skápum. Tvö barnaherbergi sem hefur verið opnað á milli en auðvelt er að breyta aftur í tvö herbergi. Baðherbergi með stóru baðkari, sturtuklefa og flísum á gólfi. Þvottahús með innréttingu og hillum og þaðan er hægt að ganga út á bílaplan. Garður í rækt og steypt plan bakvið húsið sem var nýtt sem körfuboltavöllur.
Kjallari: Sérinngangur. Eldhúsinnrétting með vaski og eldavél/bakaraofn. Geymsla. Rúmgóð stofa og herbergi. Snyrting og sturtuklefi. Kjallarinn er ekki inn í fermetra tölu eignar og þarfnast verulegra endurbóta.

GÓLFEFNI: Flísar eru á forstofu og baðherbergjum en parket á öðrum rýmum. Flísar á gólfi í kjallara.

Rúmgóður bílskúr fylgir eigninni ásamt góðum geymslum á baklóð hússins. 

Húsið er nýlega málað að utan.

Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, grunnskóla, íþróttaaðstöðu, sundlaug, heilsugæslu, útivistarsvæði og örstutt er út á golfvöll. Fasteignasalan vekur athygli á tengslum við seljanda.

Nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg fast: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

Fasteignin Nesbali 25

194.0 5 Herbergi 2 Stofur 5 Svefnherbergi 3 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1978
Fermetraverð : 901.546 Kr/m²
Byggingargerð : Einbýlishús
Fasteignamat : 146.050.000
Þvottahús : Sér

Nánari upplýsingar veitir:

viddi
Viðar Böðvarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Viðar stofnaði fasteignasöluna Fold árið 1994 og hefur starfað við fasteignasölu í yfir fjóra áratugi. Viðar er kvæntur og á eina uppkomna dóttur og tvö barnabörn. Hann hefur búið á Seltjarnarnesi frá 1980. Áhugamál Viðars eru allt sem viðkemur tónlist, ferðalög, lestur góðra bóka og allt sem viðkemur lífi og listum.

174.900.000 Kr.
Hafðu samband