Opið hús: 08.02.2026, 14:00 - 08.02.2026, 14:30

Mýrargata 43 (601) 101

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsileg bygging við Mýrargötu 43 (Vesturvin 1)með metnaðarfullri hönnun á frábærum útsýnisstað í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið er staðsett örstutt frá verslun og þjónustu og í 10-15 mín. göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur. Íbúðirnar í Vesturvin 1 (Mýrargata 39-43a) eru til afhendingar í febrúar 2025.

Pantið einkaskoðun hjá Jóni Rafni fasteignasala í síma 695-5520 eða sendið tölvupóst á jon@miklaborg.is

Íbúð 601 er 4ra herbergja útsýnis horníbúð á 6. hæð með tveimur bílastæðum í lokaðri bílgeymslu. Íbúðin nýtur útsýnis til sjávar í norður og vestur.  Íbúðarrýmið skiptist í stóra og bjarta stofu/eldhús með aðskildu fjölskylduherbergi.  Útgengt er á vestursvalir. Glæsileg hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi með sturtu og einnig minna svefnherbergi fyrir unglinginn eða gesti. Sér þvottaherbergi.   Birt stærð íbúðar er 193,4 m² með tveimur geymslum sem eru 17,4m² og 35,9m² merktar nr. 2. Einnig fylgja íbúðinni tvö bifreiðastæði í lokaðri bílgeymslu merktar B87 og B-89.

Íbúðirnar afhendast með hágæða ítölskum innréttingum frá Cassina en Sær er þema þessarar íbúðar sem betur má kynna sér á vefsíðu Vesturvin. Vönduð tæki frá Miele og Siemens. Steinborðplötur og gólfsíðir gluggar. Allar íbúðir eru með gólfhita.

Nánar um verkefnið hér á heimasíðu þess HÉR.

Nánari upplýsingar veita sölumenn:

Jón Rafn Valdimarsson lögg. fasteignasali í síma 6955520 eða jon@miklaborg.is

Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is

Óskar Sæmann Axelsson lögg. fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

Fasteignin Mýrargata 43 (601)

193.4 3 Herbergi 2 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2024
Fermetraverð : 1.212.513 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 150.550.000

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
234.500.000 Kr.
Hafðu samband