Opið hús: 04.02.2026, 17:00 - 04.02.2026, 17:30

Mýrargata 26 101

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Rúmgóða 2ja herbergja íbúð merkt 511 á 5. hæð í 7. hæða lyftuhúsi byggðu 2014 auk stæðis í bílageymlu. Íbúðin er skráð 84,3 fm að stærð. Eignin skiptist í anddyri, stofu með útgengt út á svalir með fallegu útsýni til suðurs, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús inn af baðherbergi og geymsla í kjallara. Aukin lofthæð er í íbúðinni ásamt gólfhita.

-Bókið skoðun hjá Steini Andra í síma 775-1577 eða steinn@miklaborg.is-

Nánari lýsing: Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi. Stofa og borðstofa eru með parket á gólfi, útgengt á suðursvalir úr stofu. Eldhúsið er með eikarinnréttingu, parket á gólfi. Svefnherbergi er með fataskápum úr eik og parket á gólfi. Baðherbergið er með eikarinnréttingu og sturtu. Inn af baðherbergi er þvottahús með glugga.


Nánar um húsið: Stæði í bílageymslu fylgir íbúð. Húsið er með stórum, sameiginlegum garði í miðjunni, auk þess sem sameiginlegar þaksvalir eru á hluta 6. og 7. hæðar. Gengið er til íbúða af glerjuðum svölum sem snúa inn að miðju.

Íbúðin er rétt hjá fjölbreyttri verslun, þjónustu og veitingastöðum í léttu göngufæri frá miðbænum.


Fyrir nánari upplýsingar eða bóka skoðun:

Steinn Andri Viðarsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða Steinn@miklaborg.is


 

 

 

 

Fasteignin Mýrargata 26

84.3 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2014
Fermetraverð : 947.805 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 86.900.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

steini
Steinn Andri Viðarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Steinn útskrifaðist sem löggiltur fasteigna- og skipasali vorið 2023. Hann hefyr brennandi áhuga á golfi og knattspyrnu. Steinn er Liverpool maður og er búsettur í Grafarvogi ásamt unnustu og syni.

79.900.000 Kr.
Hafðu samband